156. löggjafarþing — 19. fundur,  24. mars 2025.

náttúruvernd o.fl.

214. mál
[19:02]
Horfa

Ágústa Ágústsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek nú undir margt með hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni en mig langar bara að koma með aðra vinkla á þessa þjóðgarðsumræðu. Jú, það verður atvinnuuppbygging í kringum þjóðgarða. Þjóðgarðar eru ekkert alslæmir og þeir eiga rétt á sér svona hér og þar. En ég er ekki sammála því að það eigi að teppaleggja landið með þeim. Ég tek bara dæmi úr mínu nærumhverfi en ég bý við eina mestu náttúruperlu Íslands, Ásbyrgi. Þar er þjóðgarðurinn orðinn 70 ára gamall sirka, 60–70 ára gamall, og heilsársstörfin þar eru þrjú. Það vantar þetta tal um hver ársstörfin eru, ekki bara öll sumarstörfin sem skapast. Heilsársstörfin skipta mestu máli fyrir heimafólkið. Jú, að sjálfsögðu er afleidd vinna af þjóðgörðum; ferðaþjónustan byggist upp í kringum þá og allt svoleiðis. En eins og á mínu svæði þá höfum við t.d. Dettifossveg og ég veit að hv. Guðlaugur Þór Þórðarson er mér alveg sammála um að það er ótrúlega kjánalegt að eftir fjárfestingu og uppbyggingu á þessum vegi skuli ekki vera vetrarþjónusta þar. Vetrarþjónustan er enginn þannig að þegar verið er að auglýsa demantshringinn og ferðamennirnir koma og vá, Dettifoss, Dettifoss, og fara demantshringinn þá er þetta eiginlega rosalega leiðinlegur — þ.e. ef Dettifossvegur er fær bara af því að það er svo lítill snjór og fólkið kemst þá hringinn — rúntur alveg frá Dettifossvegi og inn á Húsavík af því það tekur ekkert við þeim inni í Ásbyrgi. Ekki nema fólk sé svo heppið að það sé enginn snjór þarna þannig að það geti labbað inn. Það er engin opnun í Ásbyrgi yfir veturinn, (Forseti hringir.) ekki neitt. Það er ekkert sem tekur á móti fólki.