náttúruvernd o.fl.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ágústu Ágústsdóttur fyrir hennar spurningu. Ég held að við séum nú ekkert ósammála. Markmiðið er ekki að teppaleggja landið. Markmiðið er líka, finnst mér — nú er það þannig að þegar ég ferðast um heiminn þá elti ég uppi þjóðgarða. Það er alltaf eitthvað spennandi þar. Það er örugglega eitthvað spennandi þar sem ekki er þjóðgarður en þú bara veist ekki af því. Ég sem ferðamaður nota þetta sem ákveðinn áttavita, en það dugar ekki bara. Ég velti fyrir mér, af því að það hefur verið markmið að hafa þetta einn þjóðgarð, að nú erum við með eina stofnun sem þjónustar allt nema þjóðgarðinn á Þingvöllum og þú átt alveg að geta náð hagræðingunni þar. En ef þú værir með Norður-Vatnajökulsþjóðgarð, eða hvað á að kalla það, og Langanesþjóðgarðinn þá værum við með tvo þjóðgarða sem væru enn eitt aðdráttaraflið þannig að margir myndu vilja skoða þá báða. Langanesið finnst mér bara gott dæmi. Ég hafði ekkert skoðað þetta svæði fyrr en ég fór þarna sem ráðherra. Mér finnst þetta vera stórkostlegt svæði en það er aldrei neinn að tala um það eða vekja athygli á því. Ef við færum í ábyrga uppbyggingu þar sem heimamenn væru þeir sem drífa það áfram og væru við stýrið, ef svo má segja, þá held ég að það sé besta leiðin til að ná árangri. En að við teppaleggjum landið, nei, ég held að það sé ekkert unnið með því. Þetta snýst náttúrlega um, af því að hv. þingmaður er að vísa hér til ákveðins svæðis sem þolir alveg meiri ferðamenn og það er enginn vafi, að Norðurlandið allt og stærstur hluti landsins þolir meiri ferðamenn en við erum í raun nær eingöngu með ferðamennina hérna í Reykjavík og svo á Suðurlandi eða að langstærstum hluta. Þannig að þó að þjóðgarður sé ekki bara byggður til þess að byggja upp ferðaþjónustu og atvinnustarfsemi þá finnst mér allt mæla með því að heimamenn (Forseti hringir.) séu í meiri hluta í stjórn eins og þeim var lofað og sem því miður er ekki inni í þessu frumvarpi.