156. löggjafarþing — 19. fundur,  24. mars 2025.

náttúruvernd o.fl.

214. mál
[19:06]
Horfa

Ágústa Ágústsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir svörin. Við getum verið sammála um það að heimafólk á að hafa meiri völd og það á að taka meira mark á því í sínu nærumhverfi. Hv. þingmaður talar um að hann leiti uppi þjóðgarða af því að þeir séu svo flottir og ég efast ekkert um það. En ég t.d. sem ferðamaður leita uppi ferðastaði þar sem minnst er af fólki af því að þar er alvöruupplifun, það er ekki bara eitthvað uppbyggt. Þetta er tvennt ólíkt. Það er hið ósnortna sem stór hópur ferðamanna leitar að af því að fólk vill ekki endilega alltaf vera inni á einhverjum manngerðum stígum, sem sannarlega þarf sums staðar. Þjóðgarðar eiga rétt á sér. Þeir ýta undir uppbyggingu á vissum svæðum og ég ætla ekkert að segja til um það hvar þjóðgarður eigi að vera og hvar ekki — nema hálendisþjóðgarður, þar er ég alveg skýr. En það má líka vekja athygli hæstv. ráðherra á því að traust heimamanna á mörgum svæðum er afskaplega lítið til þjóðgarða vegna svikinna loforða í gegnum tíðina. Það er líka ástæðan fyrir gríðarlega miklu vantrausti gagnvart þjóðgörðum og þeim sem þar stjórna. Menn setja yfirleitt fótinn niður strax af því að þeir vilja ekki sjá þetta, af því að þeir treysta þessu ekki.

Það sem er mikilvægast af öllu eru heilsársstörfin og að þjóðgarðarnir séu opnir á einhvern hátt eða að ferðaþjónustan geti þrifist allan ársins hring nálægt þeim. Leyfisveitingar eru líka miklu þyngri og kerfið er þyngra innan þjóðgarða, sem er líka annað sem fælir heimamenn svolítið frá. Þeir hafa oft meira vald einir og sér gagnvart uppbyggingu utan þjóðgarða. Þannig að já, við þurfum að taka tillit til hins hópsins. Það er stór hópur ferðamanna sem bara hrópar: Nei, nei, ekki breyta þessu í þjóðgarð, leyfið þessu að vera, af því að það þýðir margfalt fleiri ferðamenn. (Forseti hringir.) Er það endilega það sem við þurfum?