afsögn mennta- og barnamálaráðherra.
Frú forseti. Á svipuðum nótum og hv. þm. Hildur Sverrisdóttir hér á undan þá held ég að það sé nauðsynlegt fyrir okkur hér í þinginu að forseti þingsins hlutist til um þetta, anga þessa máls, sem snúa ekki í neinu að atburðum fyrir 35 árum síðan heldur því sem hefur verið að gerast síðustu daga í þinginu og utan þess. Mér þykir blasa við að forseti þingsins hlutist til um það, með þingflokksformönnum eftir atvikum eða formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, að málið verði tekið þar til skoðunar og þeir angar þess sem óljósir eru leiddir þar í jörðu með það fyrir augum að það sé hægt að draga línu í sandinn með þetta mál og halda áfram, ekki gagnvart því sem var tönnlast á í gær, að það væri verið að ræða sérstaklega atburði fyrir 35 árum síðan. Það var enginn að því, alla vega ekki nema þá í algeru framhjáhlaupi. Meginatriðin eru meðferð forystumanna stjórnarflokkanna á því máli sem hér er undir, (Forseti hringir.) gögnum, fundarbeiðnum, trúnaði og þar fram eftir götunum. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hlýtur að vera rétti vettvangurinn fyrir okkur hér í þinginu að leiða það í jörðu.
(Forseti (ÞSv): Forseti vekur athygli á því að það eru einhver vandræði með klukkuna í ræðustólnum.)