afsögn mennta- og barnamálaráðherra.
Frú forseti. Ég tel rétt að koma hér upp til að ítreka alla vega þrjá punkta. Ástæðan fyrir því að við í stjórnarandstöðunni erum að segja að það væri rétt að forseti myndi hlutast til um að forsætisráðherra hafi tækifæri til að koma og skýra ákveðna þætti betur fyrir þinginu, er sú að tímalínan sem vissulega var birt varpar ljósi á að hér var ekki farið með rétt mál af hálfu forsætisráðherra í pontu í gær. Það stangast fullkomlega á við orð uppljóstrarans í málinu sem vildi koma upplýsingum á framfæri við ráðuneytið. Þetta eru það veigamikil atriði að rétt er að hæstv. forsætisráðherra hafi tækifæri til að skýra mál sitt gagnvart þinginu.
Að lokum þá hafna ég alfarið orðum hæstv. utanríkisráðherra, að loksins ætli stjórnarandstaðan að tala um mál nær í tíma en fyrir 35 árum síðan. Að sjálfsögðu, eðli máls samkvæmt, er ekki hægt að ræða þetta mál nema út af því hver grunnurinn er. (Forseti hringir.) En að halda því fram að stjórnarandstaðan sé að velta sér upp úr því og hafi nánast ekki rætt aðra fleti máls í þessu máli á nokkrum dögum (Forseti hringir.) er í hæsta máta ósanngjarnt og ég hafna því alfarið.