afsögn mennta- og barnamálaráðherra.
Frú forseti. Mér finnst svolítið mikilvægt að halda því hér til haga, bara mjög einbeitt, að forsætisráðherra sat fyrir svörum blaðamanna lengi strax sama kvöld og málið kom upp og svaraði þar fyrirspurnum. Það var blaðamannafundur allra formanna stjórnarflokkanna þar sem blaðamenn gátu spurt allra þeirra spurninga sem þeir vildu. Öll tímalína málsins var birt. Menn hafa svarað fyrir þetta hér í óundirbúnum fyrirspurnatíma. Forsætisráðherra fékk einar fjórar fyrirspurnir. Hæstv. utanríkisráðherra fékk eina. Það hefur ekkert staðið á vilja neins til að upplýsa eða fræða eða fara yfir það sem þarna gerðist. Ástæðan fyrir því er mjög einföld. Það er ekkert sem blasir við í þessu máli sem segir að hæstv. forsætisráðherra hafi brugðist með einhverjum hætti ranglega við. Það sem hæstv. utanríkisráðherra var að tala um hér í ræðustól í gær var auðvitað bara það sem ætti að vera okkur öllum svolítið til að hafa í huga, þ.e. að í ljósi þess hvernig mál fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra eru vaxin, þau eru mörg hver persónuleg, þá ættum við að gæta hófs í öllum yfirlýsingum. Það er bara almenn lína, held ég, (Forseti hringir.) sem við ættum öll að hafa í huga, jafnvel þótt pólitíkin geti stundum verið svolítið grimm.