Störf þingsins.
Frú forseti. Um liðna helgi hélt Høyre, systurflokkur Sjálfstæðisflokksins í Noregi, landsfund þar sem bar til nokkurra tíðinda. Þar ályktaði flokkurinn að Noregur ætti að taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið með hraði ef aðstæður kölluðu á það. Um er að ræða einn áhrifamesta flokk Noregs en innan flokksins hafa hingað til verið skiptar skoðanir varðandi aðild að Evrópusambandinu. Breytt heimsmynd kallar á breyttan hugsunarhátt, virðulegi forseti, og Norðmenn átta sig á því. Noregur er eina NATO-ríkið með landamæri að Rússlandi sem ekki er hluti af Evrópusambandinu. Í því ljósi hafa því flokkar alls staðar á hinu pólitíska litrófi ályktað um mikilvægi þess að Noregur skoði aðild að Evrópusambandinu. Það eru stórtíðindi, sér í lagi þar sem þá yrði það raunverulegur möguleiki að EES samanstæði aðeins af Íslandi og Liechtenstein. Það þjónar ekki hagsmunum Íslendinga.
Frú forseti. Hvaða hagsmunum þjónar það að tala niður þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið, eins og sumir hv. þingmenn hafa gert undanfarin misseri? Ekki er það í þágu almannahagsmuna og varla nokkurra sérhagsmuna heldur. Ég leyfi mér að vera skýr í þeim efnum að það er ekki svo að markmiðið sé að hræða fólk til Brussel þó að breytt heimsmynd kalli á að margir endurhugsi afstöðu sína til Evrópusambandsins, líkt og systurflokkur Sjálfstæðisflokksins gerði um liðna helgi. En það er svo, virðulegi forseti, að við þurfum að velta því fyrir okkur hvað gerist ef Noregur verður aðili að Evrópusambandinu langt á undan okkur. Hvað gerist þegar og ef við sitjum ein eftir í EES með Liechtenstein?
Virðulegi forseti. Í ljósi þessara miklu tíðinda þurfum við opna augun og horfast í augu við nýjan veruleika. Ég fagna því að svo virðist sem sumir sem hingað til hafa verið andvígir aðild að Evrópusambandinu skoði nú hug sinn og sjái aðild sem raunverulegan kost í stöðunni, að teknu tilliti til þróunar í öryggismálum Evrópu og veraldarinnar allrar.
Frú forseti. Efnahagsmál og öryggismál hafa alltaf verið samofin í Evrópu og nú um stundir sérstaklega. Til forvera Evrópusambandsins var stofnað í kjölfar seinni heimsstyrjaldar til að friður myndi haldast í álfunni. Þau ríki sem eiga sameiginlega hagsmuni í viðskiptalegu tilliti eru ólíklegri til að elda grátt silfur saman.