Störf þingsins.
Frú forseti. Ég kem hér til að ræða störf þingsins eftir þann leikþátt sem við urðum vitni að í gær undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir. Ítrekað hefur komið fram að valkyrjurnar hafi rætt í sameiningu þá valkosti sem uppi voru og í kjölfarið á þeim valkostum sem stóðu fyrrverandi ráðherra til boða sá hún þann kost einan að segja af sér en tiltók jafnframt að hún væri ekki sátt. Því voru spurningar mínar eftirfarandi: Hverjir voru hinir valkostirnir? Var óbreytt mönnun ríkisstjórnarinnar valkostur? Telur forsætisráðherra eitthvað refsivert í málinu? Og að lokum: Settu tvær valkyrjur þrýsting á þá þriðju? Í gott sem engu var þessum spurningum svarað heldur snúið út úr með þeim hætti að við ættum ekki að ræða 35 ára gamalt mál og við ættum ekki að gera málið pólitískt.
Forseti. Þetta er auðvitað ekki boðlegt. Málið varð pólitískt þegar ráðherra var þvingaður til afsagnar. Það er það sem var til umræðu, ekki 35 ára gamalt mál. Hefði kannski verið ráð hjá valkyrjunum að anda ofan í kviðinn áður en ráðherranum var hent fyrir lestina og þær voru strax í kjölfarið mættar til að klappa sér á bakið fyrir hversu mikið einsdæmi það væri að ráðherra segði af sér svona fljótt? Þetta er öll samstaðan.