156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

Störf þingsins.

[14:03]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Frumvarp til laga um breytingar á sjúkratryggingum er nú til umræðu og vinnslu í þinginu í þriðja sinn að mér skilst. Það er verið að leggja til ágætar breytingar en að mínu mati er kjörið tækifæri á þessu þingi að binda svo um hnútana í lögunum að allir sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda geti fengið hana eins hratt og örugglega og mögulegt er. Nýtum tækifærið núna og skerpum á því að fé eigi að fylgja sjúklingnum. Setjum þarfir og réttindi sjúklingsins í forgrunn, ekki rekstrarformið eða hvort um erlendan eða innlendan þjónustuaðila er að ræða. Það er það sem felst í raun í sjúkratryggingum, að allir eigi sama rétt á heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Látum þá ekki fyrrgreinda þætti þvælast fyrir. Þegar hér á landi eru starfandi aðilar í heilbrigðisþjónustu sem geta sannarlega veitt þjónustuna sem fólk þarf og er að bíða eftir, nýtum þá. Eins og lögin kveða á um núna er verið að festa áfram í sessi niðurgreiðslu heilbrigðisþjónustu erlendis, þjónustu sem oft og tíðum, eins og við þekkjum, er hægt að veita hér á landi með skemmri biðtíma. Aukum skilvirkni, styttum bið fjölda fólks til að sækja hér þjónustu og jöfnum hlut einkarekinna þjónustuaðila við þá erlendu. Það einfaldar lífið og minnkar sóun að þurfa ekki að fara utan. Okkar er að tryggja réttindi fólks. Það er sjúklingnum yfirleitt til mikilla hagsbóta að komast í aðgerð sem fyrst, komast fyrr aftur á vinnumarkaðinn og almennt bæta lífsgæði sín og heilsu. Nú er lag. Sýnum að okkur sé alvara með að (Forseti hringir.) bæta þjónustuna. Látum fé fylgja sjúklingi. Við munum fara nánar yfir þetta mál í velferðarnefnd (Forseti hringir.) þar sem málið er til umfjöllunar og vonandi næst samstaða um þetta jafnræðismál á þessu þingi.