156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

Störf þingsins.

[14:10]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Virðulegur forseti. Nú á öðrum tímanum í dag var frumvarp atvinnuvegaráðherra um leiðréttingu á veiðigjöldum kynnt, sem mun leiða til þess að tekjur af þeim munu loks verða meiri en kostnaður ríkisins af þjónustu við sjávarútveg. Þar er verið að bregðast við ákalli þjóðarinnar um sanngjarna skiptingu á arðseminni sem sprettur af nýtingu þjóðarauðlindar, ákalli sem enginn getur efast um að sé raunverulegt, enda hefur það komið fram í hverri skoðanakönnuninni á fætur annarri árum og áratugum saman. Þeir flokkar sem nú mynda ríkisstjórn voru kosnir til að breyta samfélaginu fyrir hönd almennings og með því frumvarpi sem lagt er fram í dag eru þeir að sýna það í verki.

Sérhagsmunaöflin sem notið hafa þess að greiða einungis lítinn hluta af því sem eðlilegt er til samneyslunnar fyrir aðgengi sitt að þjóðarauðlindinni munu berjast hart á móti þessum breytingum. Það munu þau gera í þessum sal og utan hans. Sagan sýnir okkur það og við sem sátum á þingi árin eftir hrun, þegar síðast var reynt að hrófla við sjávarútvegskerfinu, munum vel eftir því þegar stórútgerðirnar sigldu flotanum flautandi í land til að mótmæla þeim breytingum.

Forseti. Þrátt fyrir þá breytingu sem verið er að gera mun útgerðin áfram fá tvo þriðju hluta af hagnaðinum af hverri veiðiferð og greiða þriðjung fyrir afnot af auðlindinni. Breytingarnar verða gerðar þannig að áhrif á lítil og meðalstór útgerðarfyrirtæki verða hverfandi. Þá liggur fyrir að viðbótarfjármagnið sem mun fást í ríkiskassann vegna hærri veiðigjalda á stórútgerðina mun að miklu leyti fara í vegabætur á landsbyggðinni.

Forseti. Sjávarauðlindin er sameign þjóðarinnar. Það er sanngjarnt og eðlilegt að þeir sem fá að nýta hana og hafa upp úr því gríðarlega framlegð og hagnað greiði fyrir það sanngjarnt afgjald. Það ætlar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að tryggja, fyrst allra ríkisstjórna.