grunnskólar.
Hæstv. forseti. Ég vil bara þakka þinginu að koma með þetta mál og vera með það til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd. Ég hef fengið mikil og jákvæð viðbrögð í samfélaginu öllu varðandi minnihlutaálitið í þessu máli. Kennarar og foreldrar hafa haft samband en mest þó ungt fólk og nemendur sem eru í raun stærstu hagsmunaaðilarnir í þessu máli. Ég verð því hlutlaus í áliti meiri hlutans og óska eftir því að fá fulltrúa ungs fólks og nemenda fyrir nefndina á milli umræða. Samtal við þennan stóra hagsmunahóp hefur ekki átt sér stað.