grunnskólar.
Virðulegur forseti. Ég tek undir það sem Jón Pétur Zimsen segir, að viðbrögðin við áliti okkar í minni hlutanum hafa verið nokkur og í þeim umræðum, og svo sem í fyrri umræðum á fyrri stigum, þá hefur það verið tilfinning okkar að það þurfi sannarlega að fá fleiri hópa að borðinu. Við fengum nú einhverja en einkum þá sem voru jákvæðir og eftir dúk og disk, jú, þá sem höfðu ákveðin krítísk sjónarmið uppi um þetta mál. Nú er það unga fólkið sem hefur í raun og veru ekki á neinum tímapunkti í okkar nefndarstarfi komið með sín sjónarmið að borðinu, eins og ætti að vera. Þau hafa hagsmuni í þessu máli, að skólakerfið virki fyrir þau þannig að við viljum halda áfram þessari umræðu. Það er margt gott í þessu en það er líka margt sem þarf að vera betra. Að auki nefni ég, fyrst við erum að greiða atkvæði um þetta og halda áfram með málið, að það væri æskilegt að fá hæstv. nýjan menntamálaráðherra fyrir nefndina til að ræða þetta sömuleiðis, hvort hann sé með einhverjar aðrar áherslur í þessu, bara til að viðra þetta mál áfram og halda áfram þessari pólitísku vinnu. Svo verðum við einmitt hlutlaus á þessari afgreiðslu áfram en höldum áfram með þetta í nefndinni.