kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík o.fl.
Forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík og lögum um stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Frumvarpið er hluti af þeim breytingum á stuðningi til Grindvíkinga sem kynntur var af ríkisstjórninni 18. mars sl. og í því er lagt til að frestir til þess að nýta sér þau úrræði sem lögin kveða á um verði framlengdir.
Annars vegar er lagt til að frestur til að sækja um kaup fasteignafélagsins Þórkötlu á íbúðarhúsnæði verði framlengdur um þrjá mánuði. Það myndi fela í sér að fresturinn gilti til og með 1. júlí 2025. Hins vegar er lagt til að umsóknartímabil vegna stuðningslána verði framlengt um eitt ár eða til og með 31. maí 2026. Aðrar breytingar eru ekki lagðar til á þessum úrræðum með frumvarpinu.
Forseti. Á grundvelli laga um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík hefur Fasteignafélagið Þórkatla keypt um 940 íbúðarhús og íbúðir í eigu einstaklinga innan þéttbýlismarka Grindavíkurbæjar. Áætlað er að fjöldi eigna sem ekki hefur verið sótt um kaup á séu á bilinu 40–50. Verði frumvarpið að lögum mun þeim einstaklingum sem í hlut eiga gefast rýmri frestur til að gera upp við sig hvort þeir vilji nýta úrræðið. Áætlað er að framlengingin á umsóknarfrestinum ein og sér hafi takmörkuð áhrif á ríkissjóð og húsnæðismarkaðinn þar sem áhrifin af aðgerðinni eru þegar að mestu leyti komin fram.
Forseti. Framlenging á tímabili lánveitinga stuðningslána hefur það í för með sér að rekstraraðilar, sem uppfylla skilyrði laga nr. 130/2024 til að geta tekið stuðningslán hjá viðskiptabanka með ábyrgð ríkissjóðs, hafa rýmri tíma til mats á því hvort slík lántaka hentar í rekstrinum. Töluverð óvissa ríkir um þá eftirspurn sem gæti orðið eftir stuðningslánum á næsta rúma ári og þar með mögulegri áhættu fyrir ríkissjóð. Til þessa hafa engin stuðningslán verið veitt en úrræðið gæti nýst samhliða þeirri ráðgjöf sem nú er áformað að bjóða upp á til rekstraraðila. Vegna skilyrða um tekjufall og hámarksfjárhæð lána er reiknað með að stuðningslán gætu helst hentað minni rekstraraðilum í þeim greinum sem ekki hafa getað stundað rekstur í Grindavíkurbæ að undanförnu.
Forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni þessari umræðu.