kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík o.fl.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina á mjög mikilvægu máli. Hér höldum við áfram að reyna að aðlaga stuðning ríkisins að erfiðri stöðu í Grindavík og ég hef sjálfur tekið þátt í því. Fyrir síðustu kosningar var mikil umræða um það hvort nóg væri að gert. Ég tók þann pól í hæðina að segja að það væri ómögulegt að vita. Enn stöndum við í þeim sporum að vita ekki hvernig jarðhræringar munu þróast eða byggðin í Grindavík mun þróast eða hvernig okkar góða fólki í Grindavík mun vegna. Ég hef átt fjölda funda með fyrirtækjum í Grindavík frá því að bærinn var rýmdur og eitt af því sem kemur fram í þessu frumvarpi er framlenging á því að fyrirtæki í rekstri geti sótt stuðning til síns banka með ríkisábyrgð.
Mig langar annars vegar að spyrja hæstv. ráðherra, þar sem kemur fram í hans máli að ekkert fyrirtæki hafi nú þegar sótt um það, hvort það hafi komið til greina áður en þetta var lagt fyrir að gera einhverjar breytingar á þessu úrræði. Hins vegar hvort einhverjar svona konkret, leyfi ég mér að segja, afsakið orðbragðið, frú forseti, tillögur hafi komið frá hópi fyrirtækja í Grindavík.