156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík o.fl.

213. mál
[14:31]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Friðriki Friðrikssyni fyrir hans spurningu. Ég hygg að svarið sé kannski í sínum einfaldleika það að það tók langan tíma að setja þetta úrræði saman og það er með öllu óljóst hver eftirspurnin eftir því verður. Við getum ekki dæmt það út frá viðbrögðunum vegna þess skamma tíma sem liðinn er frá því að úrræðið var almennt boðið. Það var hins vegar á sínum tíma sett saman einmitt með það að markmiði að koma til móts við þá rekstraraðila, sérstaklega minni fyrirtækja, sem hafa verið í vandræðum og því verður áfram ætlað að sinna þeim hópi.