156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík o.fl.

213. mál
[14:32]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið. Í seinni hlutanum langar mig að spyrja hæstv. ráðherra út í það sem snýr að greiningu á rekstrarhæfi þeirra fyrirtækja sem mögulega gætu sótt um þennan stuðning. Ég veit að þetta eru fjölbreytt fyrirtæki. Sum þeirra hafa getað sótt stuðning nú þegar og hafið rekstur annars staðar. Önnur eru sannarlega, samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef fengið hér á undanförnum mánuðum, vart rekstrarhæf.

Ég vil fagna því, og tek undir með ráðherra, sem kom fram í hans greinargerð um að rekstrarstuðningur af hálfu ríkisins sé mjög mikilvægur í formi ráðgjafar. En telur ráðherrann að það komi til greina við vinnslu málsins í þinginu ef við fáum frekari upplýsingar sem gætu gagnast litlum og meðalstórum fyrirtækjum að því verði bætt við þetta frumvarp og kæmi þá til viðbótar?