kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík o.fl.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir að koma fram með þetta frumvarp og ég tek undir það sem hefur verið sagt hér í dag, við styðjum það og það gefur mikilvægt svigrúm. Mig langar líka að hvetja ríkisstjórnina til dáða í því sem nefnt hefur verið, að passa upp á að við leyfum fólki að flytja aftur eins fljótt og hægt er, reyna að tengja þetta betur. Ég veit að þetta er tengt núna við almannavarnastig en það er svo mikilvægt fyrir okkur að við séum ekki að slökkva neista fólks til þess að vilja láta til sín taka og byggja upp sitt samfélag því að sannarlega á þetta samfélag bjarta framtíð ef við vinnum vel að því saman og höldum í þennan neista. Ég hvet okkur til dáða þar og ég vil segja að hluti af því má og á að vera að passa upp á alla þessa samfélagslegu innviði. Mig langar, fyrst hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra er hér í salnum, að hvetja hann til dáða varðandi verkefni eins og stuðning við íþróttafélög og alla þessa fjármuni sem fara í það að halda samfélaginu gangandi því að samfélagið er tvístrað og við getum náð því saman með því að passa upp á þá þætti.
Svo langar mig líka að lokum að segja að það eru auðvitað margir að glíma við alvarlegar afleiðingar sem hafa verið í atvinnurekstri og ég velti því upp hvort það hafi verið til fullnustu skoðaðar aðrar leiðir en uppkaup, t.d. að það sé verið að lána annað húsnæði á vegum ríkis eða sveitarfélaga í lengri tíma og að við séum að horfa á aðrar mögulegar stuðningsaðgerðir.
En varðandi þetta frumvarp sem er hér til umræðu þá tek ég undir það sem áður hefur komið fram. Við styðjum það heils hugar og hlökkum til að vinna áfram að því að styðja við málefni Grindvíkinga.