kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík o.fl.
Forseti. Oft vill brenna við í umræðum í þessum sal að það sé meira gert úr því sem skilur okkur að en sameinar okkur en það er ákaflega ánægjulegt að í hvert einasta skipti sem málefni Grindavíkur ber á góma í þessum sal þá stendur þingheimur saman sem einn maður. Ég vil þakka þeim þingmönnum sem hafa tekið til máls í þessari umræðu fyrir málefnalegar og skynsamlegar ábendingar og fyrir að halda þeirri órofa samstöðu sem hefur verið í þessum sal um að áskoranir Grindvíkinga eru áskoranir íslensku þjóðarinnar.
Ég vonast til þess að hv. efnahags- og viðskiptanefnd taki þau sjónarmið sem hér hafa komið fram til skoðunar. Eins og ég vék að í svari mínu við spurningu hv. þm. Jóhanns Friðriks Friðrikssonar þá er auðvitað fleira undir, sérstaklega hvað varðar stuðning við aðila sem hafa fallið milli skips og bryggju í þeim almennu aðgerðum sem hafa einkennt aðgerðir undanfarið. Ég bind miklar vonir við að hægt verði að koma til móts við þá aðila þar og hlakka síðan til 2. umræðu um þetta mál.