fæðingar- og foreldraorlof.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um breytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020. Mikilvægt er að fæðingarorlofskerfið okkar taki mið af samfélagslegum aðstæðum hverju sinni og að löggjöfin sé endurskoðuð reglulega þannig að hún endurspegli þá þróun sem á sér stað í samfélaginu. Sérstaklega er vikið að fæðingarorlofskerfinu í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem m.a. kemur fram að ríkisstjórnin hafi í hyggju að gera breytingar á kerfinu til að styrkja afkomuöryggi fjölskyldna. Með þessu frumvarpi er stigið stórt skref í þá átt. Frumvarpið leggur til aukinn rétt mæðra sem glíma við veikindi í tengslum við meðgönguna, aukin réttindi þeirra til orlofstöku. Þá er einnig lagt til að bæta hag fjölburaforeldra. Það fylgir því aukið álag að eignast tvö börn í stað eins enda verkefnin tvöfalt fleiri en venjulega á meðan hendurnar til að vinna þau verk eru jafn margar.
Virðulegi forseti. Með frumvarpinu er lagt til að réttur til fæðingarorlofs sem og réttur til fæðingarstyrks vegna fjölburafæðinga verði aukinn enn frekar þannig að foreldrar eigi sameiginlegan rétt á lengingu fæðingarorlofs eða greiðslu fæðingarstyrks í sex mánuði fyrir hvert barn umfram eitt sem fæðist. Eignist fólk tvíbura lengist orlofið því um hálft ár en um 12 mánuði í tilfelli þríbura o.s.frv. Hugsanlega náttúrlega þegar þau eru orðin sex þá fer nú að verða aldeilis fjör á heimilinu. En hvað um það, það er lagt til að foreldrar sem frumættleiða eða taka í varanlegt fóstur fleiri börn en eitt á sama tíma eigi sameiginlegan rétt á lengingu fæðingarorlofs eða greiðslu fæðingarstyrks í sex mánuði fyrir hvert barn umfram eitt.
Með frumvarpinu er einnig lagt til að heimilt verði að lengja fæðingarorlof móður um allt að tvo mánuði vegna alvarlegra veikinda í tengslum við meðgönguna enda verði veikindin rakin til hennar og móðir hafi af þeim völdum verið ófær um að annast barn sitt í fæðingarorlofi. Gert er ráð fyrir að hið sama eigi við hvað varðar rétt til fæðingarstyrks samkvæmt lögunum.
Loks eru lagðar til breytingar þannig að unnt verði að samþykkja hækkanir á fjárhæðum greiðslna til foreldra samkvæmt lögunum á öðrum árstímum en um áramót ef aðstæður krefjast þess en áfram er gengið út frá því að kveðið sé á um slíkar hækkanir í reglugerð. Þá er lagt til að hið sama skuli gilda hvað varðar hækkanir á fjárhæðum greiðslna samkvæmt lögum um sorgarleyfi en mikilvægt þykir að þessar fjárhæðir séu þær sömu á hverjum tíma.
Ég vil einnig vekja athygli á gildistökuákvæðinu en ríkisstjórnin hefur ákveðið að láta breytingar á fæðingarorlofskerfinu ná til allra þeirra sem eiga inni orlof þegar breytingarnar ganga í garð. Um þetta segir í greinargerð, með leyfi forseta:
„Gert er ráð fyrir að þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpi þessu öðlist gildi 1. júlí 2025 og eigi við um foreldra sem eiga rétt til greiðslna samkvæmt lögunum. Er þannig gert ráð fyrir að breytingarnar eigi við um alla foreldra sem eiga ónýttan rétt innan fæðingarorlofskerfisins 1. júlí 2025 …“
Virðulegi forseti. Eins og ég vék að í upphafi ræðu minnar þá felast í þessu frumvarpi um breytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof í samræmi við þau fyrirheit sem koma fram í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Ég hef því trú á því að þessar breytingar séu til þess fallnar að styrkja enn frekar fæðingarorlofskerfið hér á landi og stuðli að enn betra jafnvægi milli atvinnuþátttöku og fjölskyldulífs hjá þeim foreldrum sem frumvarpið nær til.
Ég legg að lokum til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar að lokinni þessari umræðu.