fæðingar- og foreldraorlof.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar og tek heils hugar undir að það er ástæða til að skoða alla anga. Í þessu tilviki heyrir þessi spurning hv. þingmanns svo sem ekki beint undir þetta tiltekna frumvarp en samt sem áður, eins og við höfum gjarnan sagt, veit ég að við hv. þingmaður erum sammála um að við eigum ekki að mismuna fólki eftir búsetu, þannig að ef sú staða kemur upp þá finnst mér alveg eðlilegt að skoða nákvæmlega það sem hv. þingmaður er að benda á. Við viljum ekki mismuna fólki eftir búsetu að einu eða neinu leyti og sannarlega ekki þegar, eins og hv. þingmaður bendir á, um einhvern ómöguleika er að ræða að njóta þjónustunnar og umhyggjunnar í heimabyggð. Þannig að aftur, hv. þingmaður: Þakka þér.