156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

fæðingar- og foreldraorlof.

215. mál
[15:04]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er jákvætt að hugað sé að því að styrkja enn frekar fæðingarorlofskerfið á Íslandi, kerfi sem er með því besta sem gerist í heiminum. Sterkt fæðingarorlofskerfi er gríðarlega mikilvægt jafnréttismál sem Sjálfstæðisflokkurinn á stóran þátt í þróun og umbótum á. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir okkur foreldra og börnin sem búum í Reykjavíkurborg þar sem meiri hlutinn lætur sig þessi mál litlu varða, enda hvergi fleiri börn sem bíða eftir dagvistunarúrræði og lokunardagar orðnir óheyrilega margir, alger fasti í lífi foreldra og barna í Reykjavík.

Virðulegi forseti. Ég held að það sé rétt skilið hjá mér að breytingar þær sem hæstv. ráðherra mælir hér fyrir muni eiga við um alla foreldra í orlofi burt séð frá fæðingardegi. Þegar ég hef í huga stefnuræðu hæstv. forsætisráðherra, stór orð forsvarsmanna úr þessari ríkisstjórn, hæstv. ráðherra í þessari ríkisstjórn, sem hafa m.a. vísað til sterkra jafnræðisraka í þessu tilliti, þá langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra að því hvort fyrirhugað sé að gera breytingar á lögunum þannig að hækkun fæðingarorlofsgreiðslna í 800.000 og svo seinna meir í 900.000 muni gilda óháð fæðingardegi barns. Og ef það er fyrirhugað, af hverju eru þessar breytingar þá ekki hluti af þessu frumvarpi hæstv. ráðherra?