fæðingar- og foreldraorlof.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir hennar andsvar. Ég vil bara ítreka það að þetta tiltekna frumvarp sem ég mæli hér fyrir í dag er lítið tengt dagvistun Reykjavíkurborgar og biðlistum þar en breytir ekki þeirri staðreynd að ef það verður mikið um fjölburafæðingar, eins og við gjarnan vonum, þá kannski myndu biðlistar lengjast og engum til gleði, hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir. En þetta frumvarp lýtur, eins og hv. þingmaður væntanlega hefur gert sér grein fyrir, að því að lengja fæðingarorlof fjölburaforeldra. Það er ekki talað um í þessu frumvarpi þessar upphæðir sem hv. þingmaður er að tala um. Við erum ekki að fara að skerða að einu eða neinu leyti þau réttindi, áunnu réttindi, sem þegar eru til í fæðingarorlofskerfinu. Ég veit nú ekki alveg, ég verð að viðurkenna eins og er, hvert hv. þingmaður er að fara en ég er alla vega komin fram með þetta frábæra frumvarp og óska eftir stuðningi við það. Mér persónulega finnst það virkilega fallegt og ég býst við því að allur þingheimur muni taka því fagnandi og ætla að vona að það auki bara við frjósemi hér í þingsal ef eitthvað er.