156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

fæðingar- og foreldraorlof.

215. mál
[15:07]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og tek undir það að frumvarpið er sannarlega fagnaðarefni og ég vona að það hafi komist til skila. En það að frumvarpið tengist ekki dagvistunarmálum í Reykjavík, ég er bara algerlega ósammála því. Vegna vanhæfni sveitarfélaga á Íslandi, sérstaklega Reykjavíkurborgar, til að koma til móts við foreldra og börn í Reykjavík þá höfum við hér á Alþingi þurft að stíga sífellt stærri skref til að styrkja fæðingarorlofskerfið. Við höfum gert það með glöðu geði og erum að gera það hér í dag og ég fagna því. En af því að hæstv. ráðherra svaraði ekki spurningunni og virtist ekki hafa skilið hana þá langar mig að endurtaka hana: Er þá fyrirhugað — greinilega ekki í þessu frumvarpi og ég spyr mig af hverju — að gera breytingar á fæðingarorlofslöggjöfinni þannig að fyrirhugaðar hækkanir, fyrst í 800.000 og svo í 900.000, muni taka til foreldra og barna í orlofi burt séð frá fæðingardegi?