156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

fæðingar- og foreldraorlof.

215. mál
[15:08]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Heyrðu, ég veit að þessi fyrirhugaða hækkun, sem var fyrirhugað að kæmi til framkvæmda nú um næstu áramót ef ég skil það rétt og var lögð fram af fyrri ríkisstjórn — við höfum ekki verið að gera ráð fyrir því að skerða það að einu eða neinu leyti. Þetta frumvarp sérstaklega, eins og hv. þingmaður réttilega bendir á, er ekkert að fjalla um það en það munum við bara skoða. Varðandi þessi réttindi sem fæðingarorlofsfrumvarpið er að veita fjölburaforeldrum burt séð frá fæðingardegi þá bara kemur skýrt fram að þeir einstaklingar sem eru nýbúnir að eiga börn, jafnvel þó að það sé einhverjum tveim mánuðum áður en þetta frumvarp kemur til — við skulum segja viðmiðunin 1. júní og ef þú hefur átt barnið þitt í apríl þá muntu fá að njóta þeirra réttinda sem frumvarpið veitir. Það er það sem er verið að reyna að tryggja í frumvarpinu. En við ætlum ekki að fara að klóra í það sem er fyrirhugað í sambandi við væntanlegar greiðslur sem fyrrverandi ríkisstjórn kom með, 800.000 eða 900.000. Ég hef ekki hugsað mér að gera slíkt.