fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma fram með þetta frumvarp sem ég tel ákaflega mikilvægt. Það er sannarlega þannig, þegar um fjölburafæðingar er að ræða, að margar hendur vinna létt verk en það þarf margar hendur og þetta er mun meiri vinna og reynir á foreldra og lenging fæðingarorlofs slíkra foreldra er því ákaflega tímabær. Sömuleiðis finnst mér það að rýmka þennan rétt ef um veikindi móður er að ræða vera mjög jákvætt, þannig að ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að stíga fram með þetta frumvarp hér í dag.
Ég get tekið undir áhyggjur hv. þm. Ingibjargar Isaksen varðandi landsbyggðarmálin og hvet nefnd og hæstv. ráðherra til að huga að landsbyggðarvinklum sérstaklega. Ég get líka að vissu leyti tekið undir að það er mikilvægt að hugsa um þessa hluti í samhengi við dagvistunarmál því að þetta eru viðfangsefni sem hvíla mjög þungt á foreldrum, ekki síst á fjölburaforeldrum, um það hvað taki við að fæðingarorlofi loknu.
Heilt yfir bara þakka ég fyrir frábært framtak en spyr ráðherra kannski að lokum: Hefur eitthvað komið til tals að hafa fjárhæð hærri þegar við erum að tala um fleiri en eitt barn í ljósi þess að kostnaður er yfirleitt töluvert hærri líka?