156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

fæðingar- og foreldraorlof.

215. mál
[15:11]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur hjartanlega fyrir hennar andsvar og góða hvatningu. Ég get tekið undir með hv. þingmanni að auðvitað verðum við að tryggja það að þeir sem búa á landsbyggðinni, þær verðandi mæður og foreldrar sem búa á landsbyggðinni og þurfa að leita hingað á höfuðborgarsvæðið vegna þess að þau hafa ekki þjónustu í heimabyggð — við verðum sannarlega að gefa því gaum og taka tillit til þess og leysa það. Þetta frumvarp er hins vegar nokkuð skýrt með sín markmið og hvað varðar spurningu hv. þingmanns, um það hvort komi til greina að hækka greiðslur vegna þess að kostnaðurinn er meiri við fleiri börn, þá náttúrlega er verið að lengja hér með hverju barni fæðingarorlofið sem slíkt um hálft ár. Það er það sem þetta frumvarp er að boða. Eins að taka utan um það sem hv. þingmaður minnist á, og ég sagði í flutningsræðu minni, að við ætlum líka að lengja orlofið með tilliti til þess ef móðirin hefur á meðgöngu verið veik og er sannarlega enn þá veik eftir að barnið er fætt eða börnin.

Ég segi bara aftur, hv. þingmaður: Takk fyrir og ég gleðst yfir því að finna þennan velvilja og góða hug sem þetta mál er að fá og ég veit að við eigum öll eftir að fylgja því fallega úr hlaði. Það er alltaf gott, ef upp koma einhverjar svona vangaveltur um málið, að við fáum það í gegnum þrjár umræður og það er hægt að koma með alls konar tillögur og vangaveltur inni í nefndinni og með tilliti til umsagna og annað slíkt. En svona er frumvarp okkar í dag og mér finnst það bara virkilega fallegt, hv. þingmaður.