fæðingar- og foreldraorlof.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Ég get alveg tekið undir það af heilum hug að kostnaðurinn er sannarlega tvöfaldur með tvö og þrefaldur með þrjú o.s.frv., þannig að ég sendi bara hvatningu mína inn í nefndina sem fær núna þetta fallega mál í fangið. Við skulum bara gera það enn betra ef þess er einhver kostur. En svona er þetta mál núna, þetta frumvarp er um það að lengja fæðingarorlofsrétt fjölburaforeldra og koma til móts við mæður sem veikjast á meðgöngu. Ég verð að segja að ég er afskaplega stolt af því að fá að flytja þetta mál og ég vona að við höldum áfram að fylgja því úr hlaði með bjartsýni og bros að leiðarljósi.