156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

fæðingar- og foreldraorlof.

215. mál
[15:15]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Hér er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, um fjölburaforeldra og veikindi á meðgöngu. Hér eru stigin mikilvæg skref í átt að bættri afkomu einstaklinga sem reiða sig á fæðingarorlofskerfið og eru mjög ákveðin skref í þeirri vegferð að létta undir með hópum sem verða fyrir auknu álagi á meðgöngu og í fæðingarorlofi, þ.e. fjölburaforeldrum og þeim sem veikjast á meðgöngu.

Ég vil þakka hæstv. ráðherra Ingu Sæland fyrir frumvarpið og fagna því mjög. Efni frumvarpsins er gott og er jafnframt sú breyting lögð til í því, miðað við t.d. framkvæmd breytinga á fæðingarorlofskerfinu á síðasta kjörtímabili, sem hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir kom inn á sínu andsvari, að þær breytingar sem um ræðir í þessu frumvarpi nái til allra þeirra sem rétt eiga á greiðslum samkvæmt lögunum, þ.e. að þessar breytingar um lengingu á fæðingarorlofi fjölburaforeldra og þeirra sem veikjast á meðgöngu eigi við um alla foreldra sem eiga ónýttan rétt innan fæðingarorlofskerfisins við gildistöku laganna óháð því hvenær börn fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur.

Þetta er fagnaðarefni og þessi framkvæmd rímar við athugasemdir þingflokks Samfylkingarinnar á síðasta kjörtímabili um breytingar á fæðingarorlofskerfinu sem þá tóku gildi en þær breytingar náðu ekki til allra sem áttu rétt á fæðingarorlofsgreiðslum óháð fæðingardegi barns. Foreldrar gátu því lent öðrum hvorum megin við ákveðna dagsetningu og út frá því t.d. hvenær barn fæddist áttu foreldrarnir mismunandi rétt á mismunandi greiðslum. Það að foreldrar eigi rétt á greiðslum óháð fæðingardegi barns er jafnréttismál og sanngirnismál og það er mikilvægt að gæta jafnræðis milli foreldra sem eiga rétt á fæðingarorlofsgreiðslum óháð því hvort barn fæðist öðrum hvorum megin við fyrir fram ákveðna dagsetningu.

Að mati þeirrar sem hér stendur þarf að skoða í framhaldinu hvort ekki beri að breyta þeirri tilhögun sem samþykkt var af Alþingi á síðasta kjörtímabili um hækkun fæðingarorlofsgreiðslna í þessum þrepum. Auðvitað kostar það fjármagn og það er ekki efni þessa frumvarps en það er vert að skoða að mínu mati og fagna ég þessari breyttu framkvæmd í frumvarpinu.

Jafnframt ber að skoða að mínu mati möguleg áhrif á jafnrétti kynjanna þegar kemur að skiptingu fæðingarorlofs, eins og hv. þm. Ingibjörg Isaksen kom inn á í máli sínu og hefur komið fram í umsögnum við frumvarpið í samráðsgátt. Eins og komið hefur fram í máli hv. þingmanna spilar þetta saman við dagvistunarmál, leikskólakerfin, og það er vert að benda á það að leikskólamál eru áskorun í mörgum sveitarfélögum en ekki einungis í Reykjavík. Samkvæmt gögnum Hagstofunnar, nýjustu gögnum sem sú sem hér stendur gat séð, frá 2023, er hlutfall eins árs barna í leikskóla á mismunandi landsvæðum þannig að hlutfallið er aðeins hærra í Reykjavík en á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur. En þetta eru auðvitað ekki nýjustu gögn og sú sem hér stendur bíður spennt eftir þeim. Hlutfallið er til að mynda 10% á Suðurnesjum. Þannig að að mínu mati þurfum við hérna á Alþingi að styðja við sveitarfélögin í þessari vegferð. Það er önnur umræða og kannski ekki beinlínis efni þessa frumvarps en ég tel mikilvægt að koma inn á að það er hlutverk okkar að vinna saman með sveitarfélögunum og ekki einungis skamma þau þegar kemur að dagvistunarmálum. Þetta er okkar sameiginlega verkefni hér á Alþingi og á meðal sveitarfélaganna.

En aftur fagna ég efni þessa frumvarps og ég hlakka til að fylgja málinu eftir í hv. velferðarnefnd.