156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

fæðingar- og foreldraorlof.

215. mál
[15:20]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf):

Frú forseti. Það er virkilega gaman að koma hér og fjalla um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof sem hæstv. ráðherra kynnti hér fyrir þingheimi. Hér erum við að ræða breytingar á fæðingarorlofslögum til að lengja réttindi fyrir fjölburaforeldra. Það er mikilvægt að minnast þess og vita það að staða fjölburaforeldra er auðvitað að mörgu leyti ólík stöðu annarra foreldra. Þegar þú færð fleiri en eitt barn í hendur við fæðingu er það meira álag á foreldra, bæði á meðgöngu og í kjölfar hennar. Verandi sjálfur fjölburapabbi, ég á tvíburadætur, það eru 24 ár síðan þær fæddust, þá hef ég upplifað þetta, að fá lengingu sem þá var þrír mánuðir og veit hversu gott það hefði verið að geta nýtt enn lengri tíma.

Fjölburafæðingum fylgir aukinn kostnaður fyrir fjölskyldur. Það þarf yfirleitt að kaupa tvennt eða þrennt eða fernt af öllu sem þarf, eftir því hver fjöldi barna er, og svo er það líka hinn þátturinn, þ.e. að sinna börnunum og það er auðvitað ekki endilega á færi einnar manneskju að bregðast við þegar börnin kalla og því skiptir sköpum fyrir foreldra að vera tveir á staðnum. Því er auðvitað bara mjög mikilvægt að bregðast við og lengja þann rétt sem foreldrar hafa þar sem umfangið er auðvitað mikið meira í þessum tilvikum og virkilega brýnt að bregðast við og ég tel því mjög mikilvægt að lengja orlofstímann.

Síðan er auðvitað verið að gera fleiri breytingar í þessu frumvarpi og má þar m.a. nefna veikindi á meðgöngu, þ.e. að lengja þann tíma og bregðast við og taka á þáttum varðandi fæðingarstyrk fjölburaforeldra. Það er auðvitað mjög brýnt að bregðast við þessu sökum þess að álagið, eins og ég segi, getur verið þó nokkuð mikið meira.

Í frumvarpinu er fjallað um upphæðir í sorgarleyfi, sem er hluti af þessu frumvarpi, það er verið að breyta 33. gr. laga um sorgarleyfi, að upphæðir geti verið uppfærðar örar eða eftir þörfum, svo sem þegar launaþróun hefur verið með ákveðnum hætti á markaði. Þetta er auðvitað mjög brýnt að mínu mati en ég vil jafnframt vekja athygli á því að ég hef í gegnum tíðina verið talsmaður þess að upphæðir í þessum tilfærslukerfum okkar, stuðningskerfi fæðingarorlofskerfisins sem og annars staðar, fylgi þeim mörkum sem eru á markaði, vinnumarkaði, þannig að það sé raunverulegur kostur fyrir fólk að nýta kerfin þó að við séum ekki endilega að gera þá breytingu hér. Ég held að það sé til lengri tíma litið brýnt að rýna í þetta og tryggja að upphæðir fylgi þróun. Ég veit til þess að það er ekkert langt síðan það voru gerðar breytingar á því.

Það er eitt sem mig langar að nefna hér og það er varðandi skiptingu tímans. Eftir að hafa þessa persónulegu reynslu af því að vera fjölburaforeldri þá veit ég að það skiptir miklu máli að tímalengdin sem skilgreind er í grunnréttindum er með ákveðnum hætti en í þeim tilvikum þar sem er verið að tala um fjölburafæðingar þá skiptir mjög miklu máli að mínu mati að þar sé sveigjanleiki til að foreldrar geti ráðstafað þeim tíma eftir þörfum. Það getur verið mjög misjafnt hvernig staðan er og ég held að sá sveigjanleiki sé mikilvægur. Það er ekki verið að gera breytingu á þeim þætti laganna og ég held að það sé gott að við höldum þessum sveigjanleika þegar kemur að fjölburafæðingum. Þá geta foreldrar brugðist við eftir því hvernig hentar að sinna sínum börnum og eflaust getur verið örlítið meiri áskorun að koma börnum í dagvistun eða í leikskóla í kjölfarið, verandi með fleiri en eitt barn. Mér finnst mikilvægt að við séum ekki að breyta þessu á þessum tímapunkti og að lengingin geti þá komið til ráðstöfunar foreldra eftir því sem hentar.

Varðandi veikindi á meðgöngu þá kom ég svo sem inn á það áðan, ég held að það sé mjög mikilvægt að það sé brugðist við ekki bara vegna veikinda í kjölfar fæðingar heldur einnig veikinda á meðgöngu, það sé horft til þess sökum þess að það geta orðið meiri áskoranir sérstaklega á fjölburameðgöngu þannig að það sé verið að grípa fólk þegar fólk dettur út af vinnumarkaði vegna veikinda á meðgöngu. Þar spilar vissulega inn í líka veikindaréttur á vinnumarkaði. En með þessu er verið að grípa inn í að hluta til.

Virðulegi forseti. Að síðustu vil ég líka árétta mikilvægi þess sem kemur fram í 6. gr. frumvarpsins, þar er talað um að lög þessi öðlist gildi 1. júlí 2025 og eigi við um foreldra sem rétt eiga til greiðslna samkvæmt lögunum. Þar vil ég líta svo á að verið sé að tryggja réttindi þeirra sem eru að nýta réttinn og mér finnst það mjög mikilvægt að rétturinn komi til þeirra foreldra sem njóta réttar og eru að nýta sér fæðingarorlof og eru í þessari stöðu.

Ég held að þetta sé gríðarlega gott mál og mikilvægt mál fyrir fjölskyldur, mikilvægt mál fyrir Ísland og íslenskt velferðarkerfi, að stuðningur við fjölskyldur sé aukinn og sérstaklega þá, eins og hér kemur fram, varðandi fjölburafæðingar. Ég hlakka til að ræða málið betur í hv. velferðarnefnd og vil bara hrósa hæstv. ráðherra fyrir að leggja þetta mál fram hér á þinginu.