fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Ég fékk ábendingu bara rétt í þessu frá einstæðri móður sem er að fylgjast grannt með umræðunni og hefur reyndar sent inn umsögn í samráðsgátt fyrir hönd einstæðra mæðra. Ég hefði nú tekið þetta með mér í andsvör ef ábendingin hefði borist mér fyrr en hún varðar það að einstæðar mæður séu í mjög þröngri stöðu. Þær hafi aðeins sex mánaða orlof og enginn sé á móti til þess að vinna á meðan móðir sinnir barni. Við það bætast sex vikur til viðbótar ef samvinnan og samskiptin eru góð við föður og það sama gildir auðvitað og öfugt í þeim sjaldgæfu tilvikum þegar feður eru í þessari sömu stöðu. Auðvitað er það mun algengara með mæður. Viðkomandi saknar þess sem sagt úr þessari umræðu.
Í kjölfar þessarar ábendingar má nefna reyndar háværa umræðu í samfélaginu, af því að þessi mál hafa verið ágætlega á dagskrá undanfarna mánuði og ár, um að löggjöf okkar sé ekki samræmd við löggjöfina í Skandinavíu. Þar sé það víst svo að fæðingarorlofsréttur fari til móður við þessar aðstæður, þ.e. þegar enginn faðir sé á móti til að taka orlof eða vinna á móti meðan móðir sinnir barni. Þessar aðstæður geta auðvitað verið einstæðum mæðrum og, eins og ég nefni, í fáeinum tilvikum einstæðum feðrum, mjög þungbærar. Það væri athyglisvert að heyra örlítið frá hæstv. ráðherra um afstöðu hennar til þessa og hvort ríkisstjórnin hafi einhvern hug á því að bæta stöðu einstæðra mæðra í þessu tilliti.