156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

fæðingar- og foreldraorlof.

215. mál
[15:31]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hann spyr að því hvort mér þyki að þessar breytingar gangi nógu langt. Mig langar að endurtaka það sem ég sagði áðan. Ég sakna þess, ekki síst með tilliti til stórra orða ekki bara einhverra hæstv. ráðherra í þessari ríkisstjórn heldur m.a. forsætisráðherra í stefnuræðu sinni um jafnræði og með tilliti til foreldra og barna sem eru í þessari stöðu, þ.e. sem hafa þegar hafið fæðingarorlof, að hækkunin sem hefur verið samþykkt á Alþingi skuli ekki taka til og breytingar ekki gerðar á þeim lögum þannig að hún taki til þeirra foreldra og barna sem þegar hafa hafið orlof.

Varðandi fjölburafæðingarnar þá skil ég það sem svo að það sama gildi ef undir eru fjölburar. Það sé sem sagt ekki stigvaxandi. Ég gat ekki séð að það væri um neitt þak að ræða í því tilliti. Ég sagði það líka áðan að ég fagnaði þessu frumvarpi og að mér þætti það vera tímabært. Það er gott að verið sé að fylgja eftir fögrum fyrirheitum en eins og ég segi þá sakna ég þessara tilteknu ákvæða og umræðu um þetta, sem virtist hreinlega koma hæstv. ráðherra að einhverju leyti á óvart.