156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

fæðingar- og foreldraorlof.

215. mál
[15:33]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvar. Ég gat ekki heyrt betur á hæstv. ráðherra en að það væru ekki uppi fyrirætlanir um að bregðast við þessum ábendingum. Eins og ég segi þá kemur kannski á óvart að það sé ekki hluti af fyrirhuguðum breytingartillögum vegna háværrar umræðu, ekki síst frá því fólki sem nú situr í hæstv. ríkisstjórn, um hvað það væri gríðarlega mikið jafnræðismál að fyrirhugaðar breytingar og hækkanir tækju til allra þeirra foreldra og barna sem þegar hefðu hafið orlof. Ja, stundum breytist myndin þegar völdin eru komin upp í hendurnar á manni, ég skal ekki segja hvað veldur. En ég gat ekki heyrt það á hæstv. ráðherra að fyrirhugað væri að bregðast við umræddum ábendingum.