fæðingar- og foreldraorlof.
Frú forseti. Mig langaði að fá að spyrja hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur hvort hún hafi skoðun á því, fyrst þetta frumvarp er komið fram, hvers vegna ekki var gengið lengra, þ.e. að sameina fleiri þætti og aukið frelsi foreldra til að ráðstafa tíma sínum með fæðingarorlofinu. Það var kannski fyrsta spurningin: Af hverju ekki að gera þetta samhliða?
Önnur spurningin, af því að ég heyri að hv. þingmaður hefur kynnt sér þetta, varðar það hvernig þetta hefur verið undanfarið. Þekkir hv. þingmaður það hvort mánuðir sem segja má að barn fái séu færri en þegar valfrelsið var meira hér áður fyrr? Ég læt þetta duga í bili.