fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi það af hverju þetta góða frumvarp sem við ræðum í dag taki ekki til fleiri þátta, m.a. að foreldrum sé veitt meira frelsi til að ráðstafa tíma sínum sjálfir, þá get ég ekki svarað því en hér í salnum situr hæstv. ráðherra sem vill kannski koma á framfæri einhverjum sjónarmiðum um það. Mér heyrðist reyndar á orðum hennar áðan að henni hugnaðist það fyrirkomulag ef ég skildi hana rétt. Ég vona að ég sé ekki að fara með fleipur. Ég hreinlega átta mig ekki á þessu. Það er auðvitað alltaf hægt að spyrja hvort ekki hefði átt að ganga lengra í þessu tilliti eða hvort þetta hefði ekki átt að koma til umfjöllunar en ég a.m.k. sakna þess sérstaklega að ekki sé tekið á þessu máli hvað varðar það sem var afgreitt á síðasta þingi um fyrirhugaðar hækkanir á þeim tíma, sem olli talsverðu fjaðrafoki, ekki síst hjá þingmönnum sem fengu mikið af áskorunum þess efnis frá foreldrum í fæðingarorlofi. Ég saknaði þess alveg sérstaklega.
Ég verð svo að viðurkenna að ég heyrði ekki síðari hluta fyrirspurnar hv. þingmanns sem hún getur kannski skýrt frekar í síðara andsvari.