156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

fæðingar- og foreldraorlof.

215. mál
[15:37]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Síðari hlutinn, sem hún náði ekki að koma inn á, sneri að því að þegar verið er að skipta réttindum á milli foreldra og þeir fá ekki að velja þau sjálfir, þá vitum við að mánuðirnir eru oftar en ekki fullnýttir. Þess vegna var ég að velta fyrir mér: Þekkir hv. þingmaður það, eftir því sem mánuðum fjölgaði en reglurnar voru hertar um hversu marga mánuði faðir má taka og hversu marga mánuði móðir má taka, og er það rétt skilið hjá mér að eftir þær breytingar hafi færri mánuðir nýst heilt yfir með hverju barni?