fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Hún spyr hvort ég þekki til þess hvernig mánuðir í fæðingarorlofi hafi nýst eftir því sem við höfum þrengt að löggjöfinni og valfrelsi foreldra, hvort jafnvel færri mánuðir hafi verið nýttir til fæðingarorlofs eftir þessar breytingar. Ég verð að viðurkenna að ég þekki ekki þær staðreyndir máls. Það væri kannski eitthvað fyrir okkur í þinginu að skoða, upplýsingar til þess að kalla eftir sem einhverjir duglegir hv. þingmenn gætu tekið til sín. Mér fyndist vera tilefni til þess að skoða það af því að við þekkjum auðvitað af hverju þessum reglum var komið á til að byrja með, af hverju við festum í skorðum ákveðna mánuði. Það var til þess að stuðla að auknu orlofi feðra á sínum tíma. Það markmið náðist fyrir einhverju síðan og spurning síðan hvort afturför hafi orðið í hina áttina, hvernig sem það er. Það væri auðvitað mjög athyglisvert fyrir okkur að hafa þær upplýsingar undir höndum.
Ég kom inn á áðan í stuttri ræðu, vegna ábendingar einstæðrar móður, mánuði sem hreinlega falla niður þegar mæður og kannski í einhverjum sárafáum tilvikum feður eru í þeirri stöðu að hafa í rauninni ekki eiginlegan maka, eða sem a.m.k. ekki vill eða kýs að taka ekki þátt í fæðingarorlofi eða umönnun barnsins fyrstu mánuði. Þá falla niður og fara í súginn ákveðnir mánuðir sem geta reynst einstæðum foreldrum, aðallega mæðrum, sérlega þungbærir. Ég myndi því vilja hvetja hæstv. ráðherra til að skoða þessar umsagnir og ábendingar einstæðra mæðra.