156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

fæðingar- og foreldraorlof.

215. mál
[15:55]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hæstv. ráðherra og hv. þingmönnum sem hafa tekið þátt í þessari mikilvægu umræðu hérna í dag. Ég legg mitt af mörkum og reyni að taka þátt í umræðu um þessi mál hér á þingi, ekki síst sem þingmaður Reykvíkinga þar sem örvæntingarfullir foreldrar hafa gjarnan samband við mig. Hér var, eins og komið hefur verið inn á, hávær umræða á síðasta kjörtímabili varðandi ákveðnar breytingar, sem við enduðum á að gera og leggja fram, um hækkun á þaki, sem sagt breytingar sem við vorum að gera á fæðingarorlofskerfinu og að þær tækju til allra foreldra og barna sem þegar höfðu hafið orlof sitt. Það eru ákveðin rök sem hníga á móti því. Ég geri mér grein fyrir því. En mig langar til að vísa til ræðu sem hæstv. ráðherra Jóhann Páll Jóhannsson, þáverandi þingmaður, flutti af þessu tilefni hér í þinginu, með leyfi forseta, þar sem hann fór yfir það að það væri hefð fyrir því þegar gerðar væru breytingar á þessari löggjöf að gildistakan miðaði við fæðingardag en hér væri um mjög afmarkaðar breytingar að ræða:

„Þetta er bara hækkun á tiltekinni fjárhæð og þetta er breyting sem snýst um að verja foreldra ungra barna […] og mér finnst sterk jafnræðisrök hníga að því að breytingin taki þá til allra þeirra sem eiga réttindi í fæðingarorlofskerfinu frá og með þessum tíma, að þakið hækki hjá öllum.“

Undir þetta tóku fjölmargir þingmenn og það voru í rauninni þingmenn í meiri hlutanum í nefndinni sem lögðu síðan til þessa breytingu og með ánægju. Við gerðum glöð þessa breytingu. Hæstv. ráðherra hefur greint frá því að hún hyggist ekki bregðast við þessari umræðu, þessari áframhaldandi umræðu frá síðasta kjörtímabili. Því kem ég hingað upp til að greina frá því að við höfum, nokkrir hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins, lagt fram breytingartillögu við þetta breytingafrumvarp sem við ræðum hér í dag. Breytingin snýr að því að hækkun á þakinu í 800.000 kr. muni gilda um alla foreldra sem eiga rétt á fæðingarorlofsgreiðslum, sem sagt óháð fæðingardegi barns. Grundvöllurinn fyrir þessu eru þau jafnræðisrök sem ég hef þegar rakið og hæstv. ráðherra Jóhann Páll Jóhannsson rakti svo fallega í þessum ræðustól. Tilgangurinn er sá að grípa alla foreldra og börn sem eiga rétt á fæðingarorlofsgreiðslum á þessu tímabili.