framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2024.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gnarr fyrir að mæla hér fyrir þessari tillögu. Mig langar að segja hér, því ég veit ekki hvort allir þingmenn átti sig á því, að Vestnorræna ráðið er í rauninni það alþjóðastarf sem er algerlega sérstakt hér á þinginu hvað það varðar að ályktanir þess rata hingað inn í þingsal. Það er í rauninni bundið í samþykktirnar að ályktanir sem afgreiddar eru á ársfundi Vestnorræna ráðsins eða hjá Vestnorræna ráðinu skuli birtast í þingskjali bæði hér á Íslandi, í Færeyjum og í Grænlandi. Það er ekki svo með annað alþjóðastarf þannig að þetta er einstakt. Það var áður þannig að hver og ein tillaga kom á sérþingskjali, en nú er búið að breyta fyrirkomulaginu þannig að þetta kemur saman. En mig langar að hvetja hv. nefnd — er það utanríkismálanefnd sem fær þetta til umfjöllunar eða allsherjar- og menntamálanefnd, virðulegi forseti?
(Forseti (KÁB): Utanríkismálanefnd.)
Fer til utanríkismálanefndar, já, eins og hefð hefur verið vegna þess að þetta er ályktun frá alþjóðastarfinu og það er gott og gilt. En ég veit að svo munu væntanlega menntamálaráðherrarnir vera krafnir svara fyrir næsta ársfund Vestnorræna ráðsins til að vita hvernig hefur gengið að vinna í samræmi við þessa ályktun sem hér er mælt fyrir. Ég treysti því að það verði eins og ávallt mikil samstaða hjá þingmönnum að samþykkja þær tillögur.
Ég vildi vekja athygli á þessu og ég held að það sem um ræðir hér varðandi tungumálin skipti mjög miklu máli. Ég ætla að leyfa mér að hrósa fyrrverandi hv. þm. Guðjóni Brjánssyni, sem er fyrrverandi formaður Vestnorræna ráðsins, fyrir hans vinnu varðandi máltæknina því hann var sá aðili sem svolítið setti hana á dagskrá í Vestnorræna ráðinu á sínum tíma og aðrir hafa svo fylgt því eftir. Það er oft þannig að það er langur meðgöngutími mála, fyrst var, held ég, haldin þemaráðstefna um máltæknina og þessi örmálsvæði og hvernig við gætum unnið saman og svo verður til einhver afurð sem er þá þessi ályktun sem svo kemur hér fram í þingsályktunartillögu. Ég veit að við höfum góða sögu að segja, Íslendingar, varðandi máltæknina, við höfum verið mjög framarlega á því sviði, sérstaklega þegar um er að ræða örmál sem íslenskan sannarlega er. En þá getum við ímyndað okkur hversu mikil örmál færeyskan og grænlenskan eru. Grænlenskan er kannski sérstaklega erfið vegna þess hún á ekki mikinn skyldleika við önnur tungumál.
Mig langaði bara, virðulegur forseti, að nefna þetta hér. Ég auðvitað styð þetta mál og mig langar að hvetja hv. þm. Jón Gnarr sem formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins áfram í hans störfum og deildina alla. Ég vil meina að þetta sé með mikilvægustu alþjóðastörfunum okkar hér á þingi. Mér hefur fundist það lengi, ekki síst vegna þess að ég held að mikilvægi norðurskautssvæðisins sé svo mikið og þessi svæði hafa svo mikið um það að segja. En auðvitað hafa nýjar vendingar í Washington og í heiminum öllum gert okkur það ljóst hversu mikilvægir nágrannar okkar Grænlendingar eru og það er einmitt í gegnum starf eins og í Vestnorræna ráðinu sem við getum unnið með þessum góðu nágrönnum okkar, bæði Grænlendingum og Færeyingum, á jafningjagrunni og getum lært hvert af öðru og skipst á reynslu. Eins og ég segi þá höfum við haft ýmislegt fram að færa í máltækninni en að sama skapi höfum við lært margt af þeim og getum lært margt. Ég fagna þessu, styð þetta mál heils hugar og hvet hv. þingmann og deildina alla áfram í sínum störfum.