156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2024.

194. mál
[16:08]
Horfa

Frsm. ÍVN (Jón Gnarr) (V):

Virðulegi forseti. Mig langaði bara að þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar ágætu orð um starfsemi ráðsins og svona hvatningu og heillaóskir í minn garð. Ég tek svo hjartanlega undir með þingmanninum. Þetta er gríðarlega mikilvægt alþjóðlegt starf sem við erum að vinna á þessum vettvangi og það er mikill hagur í því að treysta böndin og styrkja tengsl þessara þjóða, menningarlega og viðskiptalega, samskiptalega, og efla samstarf eins og í máltækni með tilliti til gervigreindar og ekki síst barnamenningar sem mér finnst líka gríðarlega mikilvægur hluti. Ég mun sannarlega reyna að standa mig í stykkinu sem formaður. Takk fyrir.