156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

dánaraðstoð.

59. mál
[16:10]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir þingsályktunartillögu um dánaraðstoð. Hún er einföld. Hér segir:

„Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að undirbúa og leggja fram frumvarp til laga sem heimilar dánaraðstoð.“

Þetta mál hefur verið lagt fram áður í tvígang, á síðustu tveimur þingum, og ég náði að mæla fyrir því síðast en það hlaut ekki afgreiðslu, enda var þingið þá stutt. En þetta er alls ekki í fyrsta skipti sem ég ræði þetta mikilvæga en jafnframt viðkvæma mál sem dánaraðstoð er hér í þingsal því að ég hef í gegnum tíðina lagt fram bæði fyrirspurnir, skýrslubeiðnir, annars konar þingsályktunartillögur og ýmislegt þessu tengt. Vorið 2023 var einmitt samþykkt skýrslubeiðni þar sem Alþingi fól heilbrigðisráðherra að gera skoðanakönnun um viðhorf heilbrigðisstarfsfólks, samtaka sjúklinga og almennings til dánaraðstoðar. Samkvæmt þeirri könnun voru 56% lækna, 86% hjúkrunarfræðinga og 81% sjúkraliða hlynnt dánaraðstoð alfarið, mjög eða frekar. Þessar niðurstöður sýna að stuðningur heilbrigðisstarfsfólks við dánaraðstoð hefur aukist til mikilla muna á skömmum tíma. Þær staðfesta jafnframt niðurstöður viðhorfskönnunar sem Brynhildur K. Ásgeirsdóttir framkvæmdi árið 2021 meðal lækna og hjúkrunarfræðinga á aðgerðar- og meðferðarsviðum Landspítalans en sú könnun sýndi að 54% lækna og hjúkrunarfræðinga höfðu jákvætt viðhorf til dánaraðstoðar. Viðhorfskönnun heilbrigðisráðherra sýndi einnig að 84% svarenda hjá samtökum sjúklinga voru hlynnt dánaraðstoð. Þá kom fram í svörum almennings að 75,6% svarenda voru alfarið, mjög eða frekar hlynnt dánaraðstoð.

Við höfum vitað það, virðulegur forseti, mjög lengi að stuðningur almennings við dánaraðstoð hefur verið mikill en í gegnum tíðina hefur stuðningurinn frá heilbrigðisstarfsfólki verið mun minni, en þó aukist hratt á síðustu árum eins og ég sagði áðan. Það er auðvitað það sem skiptir máli og ég vona að barátta mín fyrir þessu með því að setja málið fram í ýmsum búningum, bæði sem skýrslubeiðni, þingsályktunartillögu og þess háttar, hafi ýtt við því. En það er auðvitað fyrst og síðast fólk sem hefur staðið fyrir því úti í samfélaginu að tala fyrir dánaraðstoð og við sjáum að það er mikill áhugi í samfélaginu, það er mikill áhugi hjá fjölmiðlum um þetta mál og við heyrum mjög gjarnan fréttir af því enda er þessi málaflokkur á mjög mikilli hreyfingu víða um heim. Frá því að ég byrjaði að garfa í þessum málum þegar ég tók fyrst sæti á þingi haustið 2016 hafa umtalsvert fleiri lönd bæst við þar sem dánaraðstoð er heimil.

Á Norðurlöndunum hafa skoðanir heilbrigðisstarfsmanna einnig breyst hratt í átt að stuðningi við dánaraðstoð. Í Noregi voru 31% lækna árið 2019 og 56% hjúkrunarfræðinga árið 2022 hlynnt dánaraðstoð. Í Svíþjóð var stuðningur lækna við dánaraðstoð 47,1% árið 2021 og í Finnlandi var stuðningur lækna 55% árið 2024 og stuðningur hjúkrunarfræðinga ívið meiri.

Dánaraðstoð er sá verknaður að aðstoða einstakling við að binda enda á líf sitt á grundvelli yfirlýsts samþykkis hans til að leysa viðkomandi undan óbærilegum sársauka eða þjáningum. Árið 1997 birtist grein í Læknablaðinu þar sem fjallað var um rannsókn á afstöðu heilbrigðisstarfsfólks til siðfræðilegra álitamála um takmörkun meðferðar við lífslok. Í umræddri rannsókn var ein af spurningunum um dánaraðstoð eða líknardráp eins og það var kallað á þeim tíma. Aðeins 5% lækna og 9% hjúkrunarfræðinga töldu líknardráp réttlætanlegt undir einhverjum kringumstæðum en einungis 2% svarenda gátu hugsað sér að verða við slíkri ósk. Árið 2010 þegar sambærileg könnun var gerð varð niðurstaðan sú að líknardráp þótti réttlætanlegt hjá 18% lækna og 20% hjúkrunarfræðinga en aðeins 3% vildu verða við slíkri ósk. Í nóvember 2015 lét Siðmennt gera könnun á lífsskoðunum og trú Íslendinga. Ein spurninga í könnuninni var: „Ertu hlynntur eða andvígur því að einstaklingur geti fengið aðstoð við að binda enda á líf sitt ef hann er haldinn ólæknandi sjúkdómi (líknandi dauði)?“ Um 75% aðspurðra voru mjög eða frekar hlynnt því, 18% voru hvorki hlynnt því né andvíg og 7% mjög eða frekar andvíg. Á árunum 2019 og 2022 lét félagið Lífsvirðing gera skoðanakannanir um afstöðu almennings til dánaraðstoðar og sýndu niðurstöður þeirra að stuðningur Íslendinga við dánaraðstoð var um 77–78%.

Á síðustu árum hefur reglulega komið upp umræða í íslensku samfélagi um dánaraðstoð. Ljóst er að umgjörð um þetta viðkvæma mál er mismunandi eftir löndum. Sviss lögleiddi aðstoð við að binda enda á eigið líf árið 1937. Oregon-fylki í Bandaríkjunum leyfði dánaraðstoð árið 1997 og er ferlið þannig að læknir skrifar upp á lyf sem einstaklingurinn sækir í apótek og innbyrðir sjálfur. Kólumbía leyfði læknisfræðilega aðstoð við að deyja sama ár en aðstoð við sjálfsvíg er enn bönnuð. Holland, sem er það land sem ég vil einna helst horfa til, lögleiddi dánaraðstoð, þ.e. læknisfræðilega aðstoð við að deyja og aðstoð við að binda enda á eigið líf, árið 2002 gegn mjög ströngum skilyrðum. Með lögleiðingu dánaraðstoðar í Hollandi var undanþáguákvæði sett í hegningarlög sem gerði annars ólöglegan verknað refsilausan að ströngum skilyrðum uppfylltum. Fylgi læknir ekki ítarlegum lagaskilyrðum í Hollandi á hann yfir höfði sér ákæru og getur verið dæmdur til refsingar. Belgía innleiddi svipuð lög sama ár og Lúxemborg fylgdi í kjölfarið árið 2009. Dánaraðstoð er auk þess leyfileg í 12 fylkjum í Bandaríkjunum, a.m.k. þegar þessi greinargerð var skrifuð, og í ríkjum Eyjaálfu og í nokkrum löndum í Suður-Ameríku.

Í janúar 2017 var Lífsvirðing, félag um dánaraðstoð, stofnað. Í kjölfar stofnunar félagsins, svo og skoðanakönnunar Siðmenntar sem hér er vísað til, spruttu upp umræður í samfélaginu um málefnið. Ljóst er að stuðningur við dánaraðstoð hefur aukist til muna síðustu ár, bæði meðal heilbrigðisstarfsmanna og almennings. Telja flutningsmenn tímabært að dánaraðstoð verði heimiluð hér á landi samkvæmt ströngum skilyrðum í samræmi við lagaákvæði í Hollandi og öðrum ríkjum sem heimila dánaraðstoð.

Virðulegur forseti. Með mér á þessari þingsályktunartillögu eru hv. þingmenn Hildur Sverrisdóttir, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Grímur Grímsson, Ingvar Þóroddsson, Jón Gnarr og Sigmar Guðmundsson.

Virðulegur forseti. Á síðasta þingi, ég held ég fari rétt með, var lagt fram frumvarp sem heimilar dánaraðstoð. Það var varaþingmaður Viðreisnar og stór hluti af þingflokki Viðreisnar sem var á því frumvarpi. Ég vil líka geta þess að núverandi hæstv. ráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, hefur verið með mér á þessum málum frá því að ég lagði þau fyrst fram og fleiri, bæði úr Viðreisn en líka úr öðrum flokkum hér á þingi.

Ég vel að fara þessa leið hér, að leggja fram þingsályktunartillögu og fela heilbrigðisráðherra að undirbúa og leggja fram slíkt frumvarp í stað þess að fara þá leið sem farin var hér á síðasta þingi með frumvarpi frá Viðreisn vegna þess að ég tel svo mikilvægt að það sé hægt að reyna að ná einhvers konar breiðri samstöðu og sátt um þá aðferð sem farin verður og hvernig við búum best um þetta í lögum. Ég hef hér í ræðu minni farið yfir breytta afstöðu til dánaraðstoðar sem við sjáum hjá almenningi en líka hjá heilbrigðisstarfsfólki. Ég nefni heilbrigðisstarfsfólk sérstaklega því að í mínum huga er það algjört lykilatriði að sátt náist um það meðal heilbrigðisstarfsmanna því eins og hollenska leiðin er þá er það heimilislæknir sem þarf að samþykkja beiðnina um dánaraðstoð hjá sjúklingi sem hann þekkir vel til, er heimilislæknir viðkomandi, og annar læknir þarf að skrifa upp á hana. Það er læknirinn sjálfur sem framkvæmir þessa aðgerð. Það er sú aðferð sem hefur hugnast mér best. En stóra atriðið er að við þurfum að ná sem flestum hagaðilum að borðinu til að skrifa slíka löggjöf og ná utan um málið þannig að réttindi allra séu virt. Það hefur oft komið upp í þessari umræðu að það sé ekki hægt að setja lækni í þá aðstöðu að þurfa að framkvæma eitthvað sem hann er ekki sáttur við. Stærsti ágreiningurinn hefur oft verið um læknaeiðinn, hvort læknar eigi að líkna eða megi í þessu tilfelli deyða.

Ég lít svo á, virðulegur forseti, að þetta snúist ekkert um að fleiri deyi. Þetta snýst um að færri þjáist. Þannig vil ég í rauninni eingöngu sjá þessa umgjörð, utan um fólk sem er sárþjáð og veit að það er ekki hægt að lækna sjúkdóminn, það er dauðvona og læknum hefur ekki tekist að lina þjáningarnar. Viðkomandi einstaklingur eigi val um það að fá að deyja með reisn eða fái að velja sjálfur þegar svo er komið hvenær og hvernig hann kveður þennan heim. Þannig lít ég á þetta sem risastórt frelsismál, um mikilvægi þess að einstaklingurinn sjálfur fái að taka ákvörðun um eigin framtíð.

Ég sé líka, virðulegur forseti, að auðvitað eru margir angar á þessu máli og þetta er viðkvæmt mál. Þetta eru stórar siðferðilegar spurningar sem þarna liggja undir. Ég sé í nýjum fréttum sem ég held ég hafi lesið bara á Vísi í dag um tölur frá Hollandi þar sem hefur orðið einhver aukning á þeim sem njóta þessarar aðstoðar. Hollendingar leyfðu fyrir einhverju síðan, nú man ég ekki alveg ártalið, líka þeim sem glíma við andleg veikindi að fá þessa þjónustu. Sú sem hér stendur er ekki viss um að vilja fara þá leið en það er einmitt eitthvað sem hagaðilar gætu rætt við undirbúning slíks lagaumhverfis. Ég hef fyrst og fremst horft á þetta sem mikilvæga þjónustuleið og aðstoð til þeirra sem eru sannarlega dauðvona, með þannig sjúkdóm að læknavísindin geta ekki læknað hann og viðkomandi aðili sé sárþjáður.

Virðulegur forseti. Eins og ég sagði þá hefur þetta mál svo sem komið fram áður en þetta er bara í annað skipti sem ég fæ að mæla fyrir því. Í ljósi þess að flokkur sem hefur verið mér mjög hliðhollur í þessari umræðu er nú kominn í ríkisstjórn og hér eru einmitt þingmenn frá Viðreisn með mér sem flutningsmenn þá vona ég svo sannarlega að við getum farið að nálgast það að ná samstöðu um þetta mál. Ég ítreka það að hér erum við bara að fela heilbrigðisráðherra að undirbúa þessa vinnu. Ég geri ráð fyrir því að við slíkan undirbúning myndi hæstv. heilbrigðisráðherra kalla til helstu hagaðila. Það varð uppi fótur og fit, kannski sérstaklega hjá læknum, þegar þetta ágæta frumvarp kom fram á síðasta þingi frá Viðreisn og mörgum læknum fannst einhvern veginn fram hjá sér gengið. Það má auðvitað ekki vera upplifunin. Það er mikilvægt að læknar taki líka þátt í umræðunni og taki þátt í að aðlaga löggjöfina eins og við myndum helst vilja hafa hana. En það er ekki heldur bara þeirra að ákveða hvort þetta eigi að vera löglegt eða með hvaða hætti það eigi að vera löglegt. Mér finnst líka mikilvægt að þingmenn taki til þess afstöðu. Þar af leiðandi finnst mér líka svo áhugavert að sjá það sem ég fór hér yfir áðan í greinargerðinni varðandi stuðning sjúklingasamtaka við þetta frumvarp. Það hafa ótal margir haft samband við mig á síðustu árum frá því að ég fór að hreyfa við þessum málum um dánaraðstoð og sagt sögu sína, reynslusögu sína og aðstandenda þessu tengt.

Ég verð, virðulegur forseti, í lokin að fá að þakka þeim sem hafa lagt þessari umræðu lið á síðustu árum og í rauninni borið hana uppi. Það er félagið Lífsvirðing sem hefur staðið fyrir þeirri umræðu og það er einmitt því fólki að þakka að ég byrjaði að hreyfa við þessu og stend hér með þetta mál í höndunum í dag því að einn af mínum fyrstu fundum eftir að ég var kosin þingmaður var boð um að koma og hitta þá aðila sem voru að vinna að því að stofna Lífsvirðingu og lækni sem hafði komið að þessu úti í Hollandi, þau voru að segja okkur sína sögu og útskýra þetta ferli.

Virðulegur forseti. Mér finnst gott að fá að mæla fyrir þessu máli því að ég held að það sé svo mikilvægt, og ég held að það skipti svo miklu máli. Ég vona svo sannarlega að við séum farin að nálgast þann tímapunkt hér að við getum falið heilbrigðisráðherra þetta mikilvæga verkefni.