156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

dánaraðstoð.

59. mál
[16:33]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur kærlega fyrir þetta mál. Hér hafa verið notuð þessi orð, frelsismál, mannréttindamál, og þetta er það. En þarna eru engu að síður álitaefni og þetta er viðkvæmt, það er viðkvæmt að fjalla um þetta. Staðreyndin er sú að þessi álitamál sem hér um ræðir eru búin að koma fram í umræðunni. Hér var vísað til Hollands og ég hef skoðað ársskýrslu eftirlitsnefndar með dánaraðstoð fyrir árið 2023 í Hollandi og líka þá grein sem hv. þingmaður benti okkur á áðan á Vísi, en þar er verið að fjalla einmitt um álitaefni varðandi andleg veikindi. Nefndin hvetur til þess að það sé farið varlega þegar kemur að andlegum veikindum og ég held að við ættum að gera það hér líka.

Ég held að það sé rétt hjá hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur að fara þá leið eins og hún lýsti hér áðan, að leggja fram þingsályktunartillögu þar sem heilbrigðisráðherra verði falið að koma með lagafrumvarp, heldur en að koma fram með lagafrumvarp. Við þurfum auðvitað að hafa það í huga að við göngum samt ekki svo skammt að það gerist ekki neitt. Ég held að það sé líka mikilvægt af því við viljum gera þetta til heilla fyrir þá sem þurfa á því að halda. Það er gríðarlega mikilvægt, eins og hér hefur komið fram, að þetta er fyrir einstaklinginn en ekki aðstandendur.

Í skýrslunni sem ég nefndi áðan kemur fram að árið 2023 voru 5,4% af þeim sem létust í Hollandi á því ári sem létust með dánaraðstoð. Þetta kann að hljóma sem mjög stórt hlutfall en staðreyndin er auðvitað sú þegar maður skoðar tölurnar aðeins betur að mjög stór hluti af þeim sem nýttu dánaraðstoð voru krabbameinssjúklingar og við getum orðað það þannig að þeir sem eru mjög veikir af krabbameini, það stefnir í eina átt, þannig að það er raunverulega ástæðan.

Ég vil taka undir með hv. þm. Hildi Sverrisdóttur, ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir þetta mál. Þetta er viðkvæmt en líka mikilvægt frelsismál, að hver og einn geti fengið að ráða örlögum sínum við ákveðnar aðstæður. Ákveðnar aðstæður en það séu samt sem áður stífar reglur, ég er á því.