umferðarlög.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir þetta góða mál. Það vill svo til að sá sem hér stendur flutti einmitt ræðu undir störfum þingsins um þetta mál og síðan komumst við að því hérna í hliðarsölum að hv. þingmaður var einmitt að fara að leggja fram þetta frumvarp. Ef ég leyfi mér að sletta, „great minds think alike“, eins og vill stundum gerast. Ég er þó með eina spurningu. Eins og hv. þingmaður kom inn á í sinni ræðu þá er það t.d. þannig í Svíþjóð að það er í rauninni ekki verið að láta aldurinn ráða því hversu oft fólk er látið endurnýja. Það eru ekki þessir innbyggðu aldursfordómar inni í lögunum heldur er einungis heilsufar látið ráða för þannig að ef ég myndi t.d. fá heilablóðfall núna á næstu árum sem myndi hafa verulega mikil áhrif á mína getu til að aka bifreið, þá myndi það sama gilda um mig og einhvern sem myndi lenda í því sama kannski kominn á níræðisaldur. Ég velti fyrir mér af hverju það á samt að halda í aldursmörkin og af hverju þessi tilteknu mörk og gildistímar voru ákveðin, t.d. þessi fimm ár fyrir einstaklinga á bilinu 80–90 ára.