156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

umferðarlög.

188. mál
[17:00]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir að flytja þetta mál. Þetta er eitt af þessum málum þar sem maður veltir fyrir sér: Af hverju er ekki búið að færa þetta til betri vegar fyrir löngu síðan? Ég vona að leið þessa máls til betri vegar fyrir málaflokkinn verði greið og bein í gegnum vinnu hv. umhverfis- og samgöngunefndar og ef ástæða er til að skoða tiltekin atriði þá verði það gert þar.

Ég er svo heppinn að fá að vera einn af meðflutningsmönnum þessa góða máls. Þetta er svo margþætt. Bæði er þetta auðvitað viðurkenning á þeirri þróun sem hefur orðið á lífsgæðum og getu fullorðins fólks síðustu áratugi og auðvitað er sú þróun yfir langan tíma í raun en það er líka verið að horfa til þess að við séum ekki að íþyngja kerfunum okkar með einhverjum óþarfa. Mér segir svo hugur að þetta séu ábyggilega vel á annan tug þúsunda endurnýjana árlega sem myndu falla niður með breytingu sem þessari. Á annan tug þúsunda aðgerða sem í fer bæði tími og fyrirhöfn þeirra sem þurfa á endurnýjun að halda, kerfisins vegna, reglnanna vegna, ekki vegna þess að getan til að aka ökutæki hafi eitthvað skerst frá því að ökuskírteinið var endurnýjað síðast. Á annan tug þúsunda vottorða lækna sem gætu varið tíma sínum með miklu skynsamlegri og betri hætti ef ekki væri fyrir svona óþarfastjórnsýslu og skrifræði sem regluverkið rammar inn eins og það liggur núna. Við eigum auðvitað alltaf að vera að leita leiða til að gera kerfin okkar skynsamlegri, með betra flæði og betri fyrir borgarana. Það er engum greiði gerður með því íþyngjandi fyrirkomulagi sem hér er viðhaft. Ég verð nú að viðurkenna að ég hafði ekki áttað mig á því fyrr en hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir kynnti þetta mál í þingflokki Miðflokksins, að reglurnar hér á Íslandi væru meira íþyngjandi en víðast hvar í löndunum í kringum okkur. Þetta er bara enn eitt málið þar sem okkur tekst einhvern veginn að gera lífið torveldara, leiðinlegra og snúnara fyrir okkur sjálf en það þarf að vera.

Einhverjir munu eflaust segja: Þarf ekki þetta aukna eftirlit? Þurfum við ekki að hafa leið til að stíga inn í oftar eftir því sem aldurinn færist yfir ökumenn? En ég held nefnilega að þessar tíðu endurnýjanir virki á þveröfugan máta í raun, þær geri það að verkum að þetta verður einhvern veginn meira sjálfkrafa. Læknirinn gerir engar athugasemdir. Þessi einstaklingur var hér í fyrra og hittiðfyrra og árið þar á undan og ég ætla ekki að fara að valda vandræðum núna. Ég held að það sé miklu líklegra að stigið verði inn í þegar getunni til að stýra ökutæki hefur raunverulega hrakað ef það svona loftar meira á milli endurnýjanna. Þá er þetta ekki eins yfirþyrmandi kvöð á þeim sem þurfa að gefa út vottorð, á einstaklingnum sem er ofurseldur því að þurfa að endurnýja jafnvel yfir langan tíma ökuskírteini sitt á hverju ári.

Ég held að þetta sé eitt af þeim bestu málum, ef ekki það besta, sem mælt hefur verið fyrir hér á þessu þingi og það er ánægjulegt að heyra að þingmenn Viðreisnar taki vel í þetta mál og ég trúi ekki öðru en að þingmenn annarra flokka geri það sömuleiðis því að þetta gerir engum gagn, þessar íþyngjandi reglur eins og þær eru viðhafðar núna. Við eigum að létta á þessu, bæði út frá mati á raunverulegri þróun í raunheimum og af virðingu fyrir eldra fólki sem er auðvitað til þess bært til að aka ökutæki. Og það er auðvitað líka þannig að þegar sú geta er ekki lengur til staðar þá þarf það að verða minna feimnismál heldur en oft hefur verið, að gera breytingar þar á, ábyrgð fjölskyldu og auðvitað mat einstaklingsins skiptir það miklu máli en sömuleiðis lækna sem verða þá ekki í þessari rútínuafgreiðslu sem er viðhöfð þegar fyrst þarf yfir tímabil að endurnýja á tveggja ára fresti og síðan á hverju ári þar til ökuferli lýkur.

Þetta var innlegg mitt hér við þessa 1. umræðu og ég vona að málið fái góða afgreiðslu í umhverfis- og samgöngunefnd og komist hér til afgreiðslu og lúkningar áður en þingi lýkur í sumarbyrjun.