156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

jarðakaup erlendra aðila.

10. mál
[17:27]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og hef nokkrar spurningar. Ég er aðeins að velta fyrir mér þessari ályktun. Hver telur hv. þingmaður að sé ástæðan fyrir því að ekki sé löngu búið að gera þetta, þ.e. að setja einhvers konar takmarkanir á uppkaup erlendra aðila hér á landi? Hver er ástæðan í raun og veru? Ég spyr sérstaklega með tilliti til þess að hv. þingmaður kemur úr stjórnmálaflokki sem er reyndar búinn að vera í stjórn í fjöldamörg ár. Hefur hv. þingmaður eitthvað velt því fyrir sér hvort það sé munur á því að kaupandinn sé innan EES-svæðisins eða utan þess? Gerir hún einhvern mun á því? Telur hún að hægt sé að takmarka þetta við alla erlenda aðila eða bara hluta af þeim, þ.e. innan svæðisins eða utan eða eitthvað slíkt? Eða telur hv. þingmaður eða hefur eitthvað lagt niður fyrir sér hvort hugsanlega sé gerður einhver greinarmunur á tegund lands, hvort um sé að ræða bújarðir eða víðerni eða jarðir með einhver réttindi eins og laxveiðihlunnindi eða vatnsréttindi eða efnistöku, hvort hægt sé að takmarka einhvers staðar á þeim sviðum frekar en eftir stærð lands?