jarðakaup erlendra aðila.
Frú forseti. Ég fagna að sjálfsögðu tillögunni sem hér er komin fram. Það vill þannig til að fyrir fimm eða sex árum lagði þáverandi hv. ríkisstjórn fram breytingu til þess einmitt að koma í veg fyrir það sem þessi tillaga fjallar um. Ég skipti mér svolítið af því máli á þeim tíma og taldi allt of skammt gengið. Þau töldu að þetta væri alveg fullnægjandi breyting á þessum tíma, hvort það var 2019 eða 2020, þá var síðasta breyting í þessa veru; hvort það var sett einhvers konar 10.000 hektara hámark að einhverju leyti. En menn töldu greinilega á þeim tíma að miklar tálmanir gætu verið fyrir hendi í því að breyta þessu, þ.e. vegna EES-samningsins og fleiri hluta; að það væri erfitt að komast í að breyta þessu. Ég spyr hv. þingmann: Er hv. þingmaður vonbetri núna en þáverandi ríkisstjórn var 2019, ég man nú ekki árið, um að ná þessum breytingum fram sem er að mínu mati og greinilega hv. þingmanns nauðsynlegt að fari í gegn til þess einmitt að koma í veg fyrir — og við höfum fullt forræði yfir landinu og verðum að setja einhverjar takmarkanir á þetta. Sér hv. þingmaður fyrir sér að lækka þessi stærðarmörk enn frekar en þáverandi ríkisstjórn treysti sér til á þeim tíma? Hvort það voru 10.000 hektarar, ef ég man rétt, eða hvort settar yrðu einhverjar takmarkanir varðandi búsetu — hvernig sér hv. þingmaður búseturéttinn fyrir sér? Er það þá að þú búir á jörðinni eða að þú búir á landinu?