156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

jarðakaup erlendra aðila.

10. mál
[17:33]
Horfa

Flm. (Halla Hrund Logadóttir) (F) (andsvar):

Forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir stuðninginn við tillöguna og það er gaman að heyra að við deilum þessari sýn. Það er ákaflega mikilvægt að vinna að henni og ég myndi segja að við séum í dauðafæri að koma frekari breytingum áleiðis. Hv. þingmaður nefndi hér áðan af hverju þetta mál hefði ekki farið lengra í síðustu lagabreytingu. Ég tek undir það hversu mikilvægt það er að halda áfram; þær gengu ekki nógu langt síðast. Ég hef heyrt að ekki hafi verið fullkomin samstaða um það milli þessara þriggja flokka. Er ég bjartsýnni nú? Við erum alla vega hér hvort úr sínum stjórnarandstöðuflokknum og ríkisstjórnin talar mikið um auðlindir og eignarhald þeirra. Ég trúi því og treysti að það sé sama hvaðan gott kemur og að við snúum bökum saman. Vonandi getum við þá unnið að þessu máli því að í mínum huga er þetta ekki pólitískt mál. Mál sem varðar yfirráð yfir auðlindum og stýringu þeirra til lengri tíma er ekki mál sem á að deila okkur niður í ólíka flokka heldur einmitt mál sem á að sameina okkur fremur en að sundra þannig að ég er vongóð.

Hv. þingmaður spyr hvernig. Það er einmitt það sem starfshópnum yrði falið að gera, það eru nokkrar leiðir færar. Það er m.a. í gegnum ákveðna ábúðarskyldu eins og leiðin sem farin er í Danmörku; þú þarft t.d. að hafa lögheimili í landinu eða sinna búskap í ákveðinn tíma. Það eru leiðir sem snúa að skipulagsmálum, hvernig þú skilgreinir land; það mætti t.d. gera út frá mikilvægi auðlinda. En svo er líka sú leið sem ég vil að við skoðum betur, þ.e. að þegar við erum að leyfa erlendar (Forseti hringir.) fjárfestingar þá séum við ekki að gera það með því að selja landið og réttindin með heldur í gegnum nýtingarleyfi; að þau séu t.d. eins og í Ástralíu, (Forseti hringir.) ég veit að það er líka þannig á Grænlandi, að við séum að gera það í gegnum leyfi. — Ég biðst afsökunar, hæstv. forseti.