156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

jarðakaup erlendra aðila.

10. mál
[17:36]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka frummælanda, hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur, fyrir ágæta yfirferð. Með leyfi forseta langar mig að grípa niður í örfá orð úr greinargerðinni:

„Með þingsályktunartillögu þessari er atvinnuvegaráðherra falið að skipa sérfræðihóp sem útfæri frekari breytingar á lögum með það að markmiði að takmarka jarðakaup erlendra aðila hér á landi.“

Og, með leyfi forseta, aðeins neðar í greinargerðinni:

„Fram hefur komið að kaup erlendra aðila á jörðum til útflutnings á jarðefnum eru í undirbúningi á Mýrdalssandi.“

Vegna þessara orða í greinargerðinni þá vakna hjá mér spurningar: Hvers vegna gilda ekki í þessari þingsályktunartillögu sömu varúðarorð og hvers vegna nær tillagan ekki utan um sambærileg dæmi sem myndu þá varða bara innlenda aðila? Fjársterkir innlendir aðilar geta verið í alveg sama ferli, held ég, með sínar viðskiptahugmyndir eins og erlendir aðilar og geta auk þess leikið hlutverk milliaðila, verið einhvers konar pottur í því samhengi.

Ég velti fyrir mér, af því að þessu er flaggað hér, sérstaklega varðandi erlenda aðila, hvort ekki sé rétt að tala bara um aðila, hverrar þjóðar sem þeir eru. Ég efa ekki að það séu bullandi viðskiptatækifæri fyrir íslenska aðila að verða þarna milliliðir.