skipun aðgerðahóps vegna almyrkva á sólu 12. ágúst 2026.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um að skipaður verði aðgerðahópur vegna almyrkva á sólu 12. ágúst á næsta ári, 2026. Ég flyt þetta mál með þingflokki Viðreisnar og nokkrum þingmönnum úr Norðvestur- og Suðurkjördæmi. Þetta er sem sagt allur þingflokkur Viðreisnar og síðan hv. þingmenn Víðir Reynisson, Arna Lára Jónsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson, Ólafur Adolfsson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Sigurður Helgi Pálmason og Ingibjörg Davíðsdóttir.
Ástæðan fyrir því að ég flyt þetta mál er ofureinfaldlega sú að almyrkvi á sólu er eitthvert stórkostlegasta náttúrufyrirbrigði sem nokkurt einasta mannsbarn getur barið augum. Ég sá sjálfur sólmyrkva í Bandaríkjunum fyrir nokkrum árum, í ferð með góðu fólki að gera sjónvarpsþátt um það, og ég fullyrði að það er óheyrilega mögnuð upplifun að sjá svona myrkva. Við Íslendingar höfum tækifæri til að sjá svona almyrkva sem verður 12. ágúst á næsta ári.
Það er full ástæða til þess að við Íslendingar höfum fyrirhyggjuna í forgrunni þegar við veltum þessu fyrir okkur. Það er nefnilega þannig að myrkvinn gengur yfir vestanvert landið, byrjar á Vestfjörðum og færist síðan suður á bóginn yfir Snæfellsnesið, síðan yfir Reykjanesið og sést vel frá höfuðborgarsvæðinu, svo dæmi sé tekið. En málið er hins vegar það að við getum aldrei vitað með neinum fyrirvara hvernig veðurskilyrði verða og því getur vel verið að það verði heiðskírt á öllu landinu og að við getum notið sólmyrkvans alls staðar þar sem myrkvaslóðin rennur yfir. Það getur líka verið þannig að það verði bara heiðskírt á Vestfjörðum t.d. og þá mun fólk flykkjast þangað, nú eða á Suðurlandinu eða það verði best að vera á Reykjanesskaganum og þá erum við með Reykjanesbrautina og aðra innviði þar undir. Reynslan frá öðrum löndum er ofureinfaldlega sú að það fer óskaplegur fjöldi upp í bílana sína og keyrir á þá staði þar sem best er að sjá þetta mikla náttúrufyrirbrigði. Þetta getum við ekki undirbúið og getum ekki vitað almennilega fyrir fram fyrr en við höfum veðurspána fyrir framan okkur. Þannig er bara staðan.
Þess utan má alveg búast við því, af því að þetta er auðvitað um hásumar og það verður óheyrilegur fjöldi ferðamanna í landinu, það eiga örugglega eftir að koma 10.000–20.000 ferðamenn sérstaklega til að sjá þetta ef miðað er við reynslu frá öðrum löndum, að mjög margir ferðamenn sem á landinu verða muni færa sig til til þess að komast í góða stöðu. Og það sama gerist þá auðvitað með landsmenn líka. Það er ofureinfaldlega mjög mikið almannavarnamál að við Íslendingar búum okkur svolítið vel undir þetta. Sá undirbúningur er ekki hafinn. En ég veit að sums staðar erlendis, og vísa ég aftur til Bandaríkjanna, þá hafa svona starfshópar verið settir á laggirnar og starfað lengi til að undirbúa svæðin og almannavarnaviðbragðið fyrir þann mikla mannfjölda sem verður á faraldsfæti þegar þetta allt saman er í gangi. Til dæmis þegar sólmyrkvi gekk yfir Bandaríkin 2017, minnir mig að það hafi verið, er talað um að það hafi verið einhverjar 7 eða 10 milljónir manns sem keyrðu upp í sólmyrkvabeltið. Það belti náði reyndar þvert yfir Bandaríkin en þetta skapaði alveg gríðarlegt álag á allt kerfið þar, allt vegakerfið. Það voru miklar umferðartafir og það þurfti að kalla út þjóðvarðlið til að greiða úr flækjum. Það er bara þannig að íslenska vegakerfið okkar, heilbrigðiskerfið okkar, löggæslan og almannavarnakerfið okkar tekur ekkert endilega mið af því að svona mikill fjöldi verði á ferðinni eins og þarna mun verða. Það er auðvitað sá möguleiki að það verði hreinlega bara þungskýjað yfir landinu og við sjáum ekki myrkvann sjálfan en þá munum við a.m.k. njóta þess að um hábjartan dag verður eins og myrkur í tvær, þrjár mínútur, það verður upplifun út af fyrir sig.
Það sem þessi tillaga gengur út á er að dómsmálaráðherra skipi aðgerðahóp og að sá aðgerðahópur verði undir stjórn ríkislögreglustjóra til að meta alla þessa áhættuþætti og skipuleggja allar aðgerðir. Við getum t.d. bara nefnt að ef þúsundir og jafnvel tugþúsundir ætli að fara vestur á firði, mögulega á Látrabjarg, þúsundir ætli á Látrabjarg og við vitum alveg hvernig vegurinn er þar — er hægt að taka á móti svona miklum fjölda? Það má alveg búast við að fjöldinn verði að færa sig til einhverja daga á undan en um leið og myrkvinn er búinn, það var a.m.k. reynslan frá Bandaríkjunum, þá fara flestir til baka og það er eiginlega þá sem umferðaröngþveitið verður mest.
Þetta er sem sagt spurning um umferð. Þetta er spurning um þol veganna. Við erum auðvitað með litla einbreiða vegi úti um allt sem munu illa ráða við mjög mikla umferð. Þetta er spurning um öryggi fólks, líf og limi og heilsu. Þetta er spurning um að skipuleggja flotta útsýnisstaði eins og t.d. á Látrabjargi eða í fjöllum í grenndinni þannig að fólk fari sér ekki að voða við að ná sér í góða stöðu til að virða myrkvann fyrir sér. Þetta eru aðgerðir sem við þekkjum úr öðrum löndum þar sem svona myrkvi hefur orðið. Við eigum auðvitað að undirbúa okkur í samræmi við það.
Almyrkvi á sólu er mjög sjaldgæft fyrirbrigði. Almyrkvi sást síðast hérna á Íslandi 1954 og mun sjást næst árið 2196. Þannig að ef þið missið af honum þá náið þið ekki næsta, það held ég að sé alveg hægt að fullyrða.
Það eru 24 sveitarfélög sem eru undir. Við vitum að það er orðin upppöntuð gisting mjög víða á Vestfjörðum og á Vesturlandi þessa daga í kringum myrkvann. Það segir okkur auðvitað að fólk er þegar núna, það eru rúmir 500 dagar í þetta, byrjað að undirbúa ferðina og við getum rétt ímyndað okkur hvernig þetta verður þegar nær dregur. Þetta gerist þegar gestakomur eru í hámarki hérna á Íslandi þannig að fjöldi ferðamanna verður mikill. Það er nú nefnt hérna í greinargerðinni bara sem lítið dæmi að árið 2015 þegar það var almyrkvi á sólu í Færeyjum þá komu um 11.500 manns gagngert til Færeyja, fóru í sérstaka ferð til þess að sjá myrkvann og þetta sprengdi innviði þar nokkuð mikið og þar var talað um að það hefði hreinlega ekki verið rými fyrir fleiri í landinu. Aftur get ég vísað í reynslu Bandaríkjamanna árið 2017.
Einhvern tímann hefur það líka gerst, ég held að það hafi verið í Texas-ríki í Bandaríkjunum, að lýst hefur verið yfir neyðarástandi fyrir fram til að virkja almannavarnaviðbragðið. Það er auðvitað gert í því skyni að tryggja öryggi fólks eins og framast má verða.
Þetta er svolítið bundið við veðurspána, eins og ég segi, þannig að við getum ekki ákveðið þetta eins og þegar við erum að halda einhverjar fjölmennar hátíðir. Þingvallahátíðin hefur nú verið nefnd í þessu samhengi þegar var umferðarteppa, ef menn muna það, á sínum tíma. Þá vitum við að eitthvað er í gangi á tilteknum stað á tilteknum tíma. Því er ekki að heilsa með myrkvann vegna þess að, eins og ég lýsti hérna áðan, það getur vel verið að mesta sjónarspilið verði á Vestfjörðum eða á Vesturlandi, nú eða á höfuðborgarsvæðinu og öll umferð mun færast til í samræmi við það. Bestu mögulegu aðstæður eru að það verði bara heiðskírt á landinu öllu og þá dreifist álagið en það verður engu að síður mjög mikið á fallegum útsýnisstöðum, ætla ég að leyfa mér að fullyrða. Þetta er auðvitað eitthvað sem þessi aðgerðahópur þyrfti að fara yfir. Það eru líka svona praktísk atriði varðandi það hvernig við myndum sinna heilbrigðisþjónustu ef illa færi. Sums staðar hafa verið starfrækt svona færanleg heilbrigðisteymi til að bregðast við ef eitthvað gerist. Það er auðvitað eitthvað sem starfshópurinn þyrfti að taka til skoðunar. Við erum auðvitað að tala líka um salernisaðstöðu fyrir þúsundir, mögulega á stöðum þar sem venjulega eru ekki þúsundir. Það eru alls konar svona atriði sem þarf að hafa í huga.
Ég ætla bara að ljúka máli mínu með því að hvetja landsmenn alla til að reyna að upplifa þetta mikla náttúrufyrirbrigði. Ég lofa því að það verður enginn svikinn af því. Það er algjörlega stórkostlegt að sjá þetta, magnað að sjá hvernig náttúran hegðar sér í samræmi við myrkvann. Dýralífið hegðar sér eins og það sé að koma nótt um miðjan dag og svo vaknar allt aftur og þetta er að gerast á nokkurra mínútna bili og það er alveg ótrúlegt að fylgjast með þessu fyrir alla þá sem hafa gaman af því að vera úti í fallegri náttúru og sjá sjónarspil.
Tillagan er bara þessi, að það verði stofnaður þessi aðgerðahópur og það er til að rýna þessar áskoranir sem við stöndum frammi fyrir. Og við skulum alveg vera með það á hreinu að það verða ansi margar áskoranirnar, ansi mörg álitamálin í tengslum við þetta. Það er bara full ástæða fyrir okkur að vera vel viðbúin. Ég vil þakka meðflutningsmönnum hjartanlega fyrir að hafa tekið vel í að vera með á þessu máli sem eru, eins og fyrr segir, þingmenn Viðreisnar og svo líka þingmenn úr Norðvestur- og Suðurkjördæmi sem eiga beina hagsmuni, þ.e. þessi kjördæmi eru undir þar sem myrkvinn er annars vegar.