156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

skipun aðgerðahóps vegna almyrkva á sólu 12. ágúst 2026.

209. mál
[17:55]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna. Auðvitað er þetta stór atburður og skemmtilegur og allt það. Ég man eftir því t.d. að ég horfði á sólmyrkva 2015 hér í Reykjavík, sem var nú reyndar ekki algjör almyrkvi en hann var 97% eða 99% þannig að það var nánast það sama. Þetta var auðvitað mjög mikil upplifun og ég hlakka til þegar þetta gerist og kannski ekur maður eitthvert vestur á bóginn, út á Seltjarnarnes eða Snæfellsnes eða eitthvað slíkt, svo það sé nú sagt, enda mikill áhugamaður um stjarnfræðilega atburði.

En mig langaði bara aðeins að setja fram hérna tvo, þrjá punkta: Lögreglan er náttúrlega alvön að fást við svona, þ.e. hátíðir og samkomur og umferð og fleira og fleira og fleira, hv. þingmaður. Hún er alvön. Ég sé mig t.d. ekki leggja fram þingsályktunartillögu um viðbrögð við næstu þjóðhátíð, þó að þar þurfi að horfa í margar áttir og víða til að athuga hvað gæti hugsanlega komið upp á. Ég held að lögreglan sé fullfær um að taka þennan viðburð og gera áætlanir og aðgerðir í því sambandi. Ég spyr því bara: Gat ekki hv. þingmaður einfaldlega talað við flokksbróður sinn eða flokkssystur sína, hæstv. dómsmálaráðherra, og bent henni á að þetta gæti kannski verið svona verkefni sem hægt væri að búa sig undir?