156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

skipun aðgerðahóps vegna almyrkva á sólu 12. ágúst 2026.

209. mál
[18:00]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil nú byrja á að þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir þessa tillögu til þingsályktunar um að skipa aðgerðahóp vegna almyrkva á sólu sem á að vera hér 12. ágúst 2026. Eins og fram kemur í greinargerðinni er um einstakt fyrirbæri um að ræða og mun það hafa mikil áhrif á vestari hluta landsins sérstaklega. Ég er nú meðflutningsmaður á þessu máli af því að ég held að það skipti mjög miklu máli að við séum undirbúin undir það sem getur gerst. Það kemur fram að það muni gæta mestra áhrifa m.a. á Látrabjargi. Þar mun almyrkvinn eiga sér stað í tvær mínútur og 13 sekúndur sem er það lengsta á Íslandi. Aðstæður á Látrabjargi eru náttúrlega ekki góðar til að taka á móti svona mörgu fólki. Á Ísafirði til að mynda er gert ráð fyrir að almyrkvinn standi í eina mínútu og 31 sekúndu og það er mjög mikilvægt að greina þetta og fara yfir þetta. Hvað þurfum við að skoða? Við þurfum að skoða innviðina, eins og á Látrabjargi. Það er bara ferðamannaleið út á bjargið, það eru bara malarvegir og þeir eru bara mjög lélegir og ég gæti trúað því að við Vestfirðingar ættum landsmet í fjölda einbreiðra brúa til að mynda. Það er líka víða annars staðar á landinu, þannig að við þurfum að skoða alla þessa þætti.

Við erum auðvitað vön að gera viðbragðsáætlanir. Við eigum viðbragðsáætlanir við flugslysum, við eigum viðbragðsáætlun við rútuslysum o.s.frv. o.s.frv. og flestar þessar viðbragðsáætlanir, alla vega þegar kemur að Vestfjörðum sem ég þekki einna best — þá eru það fjarskiptin sem skipta þarna máli því að fjarskiptasamband er mjög víða stopult. Til að mynda varð hörmulegt slys í Ísafjarðardjúpi fyrir nokkrum árum og það var símasambandslaust. Það var bíll sem hafnaði úti í sjó og það var ekki símasamband þannig að það eru alls konar slíkar aðstæður sem valda því að það þarf að fara vel yfir þetta.

Með því að gera svona greiningu þá getum við líka verið á undan og gripið inn í og vísað ferðamönnum og öðrum áhugamönnum um þetta fyrirbæri á rétta staði þar sem er betra að taka á móti fólki. Þá getum við komið upp, eins og hv. þingmaður nefndi hér réttilega áðan, klósettaðstöðu og fleiru sem þarf til að taka á móti fólki. Það þarf líka að virkja heilbrigðiskerfið. Það þarf að virkja lögregluna eins og hv. þm. Karl Gauti Hjaltason nefndi hér áðan, til að mynda á Vestfjörðum. Ég held að það séu 15 lögreglumenn á öllum Vestfjörðum þannig að það þarf að skoða þau mál sérstaklega líka og að sjálfsögðu er lögreglan vel hæf til að gera slík möt. Það þarf líka að ræða við björgunarsveitir. Það þarf að ræða við sveitarfélögin líka, þau eru auðvitað með sínar áfangastaðaáætlanir og ég veit til þess að þau eru nú þegar farin að undirbúa þennan stóra viðburð.

Þetta hefur líka ekki bara áhrif á samfélagið, það sem verður náttúrlega áhugaverðast í þessu verður að sjá í rauninni bara áhrif á dýralífið. Á Látrabjargi er ein stærsta lundabyggðin á Íslandi en þó svo að lundinn verði nú svona við það að fara, hann fer svona yfirleitt í kringum verslunarmannahelgi frá bjarginu, þá gæti eitthvað verið af fugli þarna enn þá þannig að þetta verður alveg einstakt ef veðrið verður gott. Ég sem Vestfirðingur veit auðvitað að það eru mjög miklar líkur á að það verði bara mjög gott veður á Vestfjörðum í ágúst 2026 og ég mun fá kannski þingflokk Sjálfstæðisflokksins til að spá fyrir um veðrið. Þeir hafa verið ansi naskir á veðrið þannig að það verður kannski hluti af þessari sviðsmyndagreiningu sem þarf að fara í, ég horfi hér á hv. þm. Ólaf Adolfsson sem brosir breitt, og þeir eru vanir í þessu.

Ég held að það sé líka mikilvægt að ræða þetta við sveitarfélögin og þetta er ekki bara það að skoða innviðina og allt það heldur held ég að þetta sé líka tækifæri fyrir fræðsluyfirvöld og skóla til að gera efni og gera eitthvað meira úr þessum viðburði. Þetta er einstakt tækifæri til að auka fræðslu o.s.frv.

Ég vil bara þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir þetta mál af því að ég held að þetta skipti máli. Ég vona að hæstv. dómsmálaráðherra taki þetta lengra af því að ég held að þetta skipti máli.